[prenta uppsett í dálka] 6. fundur, 123. lþ.
Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. segist ekki skilja hvað ég vilji. Það sem ég vil er það að menn taki ekki þessari kenningu algjörlega hrárri og að menn taki henni ekki án þess að hafa minnsta snefil af gagnrýni á hana vegna þess að hún hefur ekki einu sinni verið sönnuð. Ég benti á að margar kenningar hafa reynst vera rangar í hvort heldur er eðlisfræði, stærðfræði, hagfræði, læknisfræði o.s.frv. (Gripið fram í.) Það sem ég er að leggja áherslu á --- ég ætla að benda þingmanninum á það sem ég vil þannig að hann nái því --- eru stórauknar rannsóknir á þessu sviði. Ég vil stórauknar rannsóknir til að leiða í ljós hvort þessi kenning sem svona mikið byggir á sé þá nokkurn veginn örugg. Það er það sem ég vil. Ég hélt að þetta væri nokkuð einfalt og skýrt.
En menn tala hér alltaf fram og til baka um afleiðingar af einhverri kenningu án þess að spyrja að því hvort kenningin sjálf sé rétt eða röng. Það vil ég varast. Ég vil eingöngu setja spurningarmerki við það og benda mönnum á að þeir eiga sjálfir að setja spurningarmerki við kenninguna.