Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Fimmtudaginn 05. nóvember 1998, kl. 16:19:27 (976)

1998-11-05 16:19:27# 123. lþ. 21.3 fundur 92#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), SJS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur, 123. lþ.

[16:19]

Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):

Herra forseti. Þetta er nú bara að verða smáspölur í mark og þá erum við hæstv. utanrrh. orðnir sammála. Ég hef að sjálfsögðu líka áhyggjur af ýmsu í þessari þróun og þessum samskiptum. Ég taldi auðvitað, eins og ég held allir, auglýsingu sem var m.a. fjármögnuð af World Wildlife Fund um síðasta fiskinn --- eða var það síðasti fiskimaðurinn --- algjört hneyksli. Það var með ólíkindum að sjá þessu dembt yfir heimsbyggðina á helstu sjónvarpsrásum aftur og aftur, þar sem villimaður steypti sér yfir síðasta fiskinn í heiminum og svo áttu menn að draga þær ályktanir af þessu að þetta væru allt saman tómir villimenn og rányrkja o.s.frv.

Önnur samtök hafa sannanlega lent í klónum á öfgamönnum og enn önnur verið handbendi eða fjáröflunarmaskínur fyrir hópa eða einstaklinga sem hafa aðallega gert út á þetta í eiginhagsmunaskyni að því er manni virðist. Þarna er því um mjög breitt svið að ræða. En til eru líka mjög mörg velviljuð umhverfisverndarsamtök, t.d. á Norðurlöndunum, sem eru að reyna að hafa jafnvægi í sínum málflutningi og sýna því skilning að menn stunda nýtingu lífrænna auðlinda. Og það væru mikil mistök ef við brenndum af okkur stuðning slíkra aðila sem við eigum í öllum aðalatriðum að geta átt sem bandamenn og líka í þeirri viðleitni að leiða önnur samtök, sem fara villir vegar, á rétta braut. Það hlýtur að vera markmiðið að reyna að sameina þessa krafta í þágu sjálfbærrar nýtingar auðlindanna og skynsamlegrar verndar náttúruauðlinda. Það mun reynast okkur Íslendingum afar mikilvægt af augljósum ástæðum að hafa sem allra öflugasta og flesta liðsmenn í þeirri baráttu, gegn mengun hafsins, gegn mengun lofthjúpsins og fyrir sjálfbærri nýtingu í jafnvægi á öllum auðlindum.

Verkefnið er vissulega vandasamt og flókið en það sem ég legg aðaláherslu á er að menn lendi ekki í því að verða svona fóbískir eða um of neikvæðir vegna þeirrar slæmu reynslu sem að hluta til hefur fengist af þessum samskiptum. Það er ekkert annað að gera en að reyna að taka á því með víðsýni og halda áfram að vinna skynsamlegum málstað fylgi í þessum efnum