[prenta uppsett í dálka] 23. fundur, 123. lþ.
Hjálmar Jónsson:
Herra forseti. Ég fór ekki á þing til þess að verða ríkur. Ég hef hingað til talið að þetta væru spurningar um hugsjónir og það að vilja koma fram málum, hafa til þess þokkalegar aðstæður og kjör. Þegar hv. þm. segir hins vegar að samkeppnin um þingsætin muni aukast verulega ef launin hækki þá sýnist mér fara lítið fyrir því að menn hafi hugsjónir. Við þurfum að halda því betur á lofti og vita það betur frá degi til dags að við erum hér vegna hugsjóna og þess sem við viljum sjá komast í framkvæmd af framfaramálum á öllum sviðum þjóðlífsins. Það er aðalmálið.
Mig langar hins vegar til þess að spyrja hv. þm. að því hvernig hann hafi leyst þennan siðferðislega vanda í heimilisbókhaldinu sínu. Hann nefndi áðan að hann hefði fundið lausn á þessu, þetta væru ekki launagreiðslur, þetta væri ekki kostnaður, þetta væri einhvers konar afgangur. Hvernig hefur hann leyst þennan siðferðislega vanda heimilisbókhaldsins? (Gripið fram í: Er Pétur að ganga til skrifta hjá prestinum?)