Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég hef hlýtt með athygli á ræðu hv. þm. Hjálmars Jónssonar þar sem hann fer yfir stöðu landsbyggðarinnar og mér heyrist að þar sé fátt nýtilegt utan fagurt landslag. Ég hef oft sagt að það er tiltölulega auðvelt að tala fólk burt af landsbyggðinni og það hafa stjórnmálamenn iðkað nú nokkuð lengi. Til þess að rétta aðeins af, ef það má orða það þannig, þá ræðu hv. þm. sem hér var flutt áðan og fjallaði aðallega um það hvað er neikvætt við það að búa úti á landi, þá vil ég spyrja hann: Getur hann ekki komið hér upp og sagt okkur frá því hvað það er gott að búa úti á landi, sagt okkur frá því af hverju við viljum búa þar og hvaða kosti það hefur fram yfir höfuðborgarsvæðið? Ég held að það væri mjög gagnlegt inn í þessa umræðu að það kæmi frá hv. þm.