Lausaganga búfjár

Miðvikudaginn 18. nóvember 1998, kl. 15:18:48 (1283)

1998-11-18 15:18:48# 123. lþ. 26.6 fundur 158. mál: #A lausaganga búfjár# fsp. (til munnl.) frá dómsmrh., dómsmrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 123. lþ.

[15:18]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Það er rétt að minna á að Umferðarráð stendur fyrir því að afhenda erlendum ferðamönnum bæklinga þar sem varað er við þessari hættu. En vegna þess sem komið hefur fram um nauðsyn á samvinnu milli ráðuneyta er rétt að taka fram að nefnd sú sem landbrh. skipaði er skipuð fulltrúum frá landbrn., bændasamtökunum, Félagi ísl. bifreiðaeigenda, Sambandi ísl. sveitarfélaga og Vegagerðinni.