Framhald umræðu um gagnagrunnsfrumvarpið

Þriðjudaginn 15. desember 1998, kl. 13:34:18 (2274)

1998-12-15 13:34:18# 123. lþ. 41.91 fundur 170#B framhald umræðu um gagnagrunnsfrumvarpið# (aths. um störf þingsins), RG
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur, 123. lþ.

[13:34]

Rannveig Guðmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég tek undir þessa gagnrýni. Stjórnarandstaðan í heilbr.- og trn. ásamt þeim þingmönnum stjórnarandstöðu sem tök höfðu á áttu fund í gær með þeim aðilum sem höfðu óskað eftir að koma á fund heilbr.- og trn. Það er alveg greinilegt að viðhorf þessara aðila er að þetta séu ekki tæknibreytingar eins og fram mun koma í ræðu frsm. þegar hún mælir fyrir frhnál. meiri hlutans á eftir. En það er mjög gagnrýnivert hvernig haldið hefur verið á þessu máli. Þetta er stórt mál sem hefði átt að reyna að ná samstöðu um í þinginu. Svona lög á ekki að setja öðruvísi en að víðtæk samstaða sé um þau. Þetta er alvarlegt mál og það hlýtur að valda öllum áhyggjum hvernig á hefur verið haldið.