Framhald þingstarfa

Þriðjudaginn 15. desember 1998, kl. 14:56:48 (2307)

1998-12-15 14:56:48# 123. lþ. 41.94 fundur 173#B framhald þingstarfa# (um fundarstjórn), SvG
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur, 123. lþ.

[14:56]

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég kvaddi mér hljóðs til að staðfesta það sem forseti sagði, sem liggur alveg fyrir að meiri hlutinn ræður og hann vill ráða og hann vill sýna vald sitt gagnvart okkur og ég óska honum til hamingju með það. Ég þakka einnig fyrir hið drengilega tilboð sem formenn þingflokka eða talsmenn þingflokka stjórnarflokkanna lögðu fram áðan um að talað væri við okkur um það hvernig ætti að pakka okkur saman hér á síðustu dögunum. Það var einkar mikil reisn yfir því af þeirra hálfu og greiðir vafalaust fyrir því hvernig þingstörfum verður lokið. En ég segi alveg eins og er að ég hef oft upplifað snjallari meðferð á lokum þingsins en mér finnst ég hafa kynnst núna síðustu klukkutímana.