Heimild Hitaveitu Suðurnesja til virkjunarframkvæmda

Fimmtudaginn 17. desember 1998, kl. 11:01:43 (2448)

1998-12-17 11:01:43# 123. lþ. 44.91 fundur 174#B heimild Hitaveitu Suðurnesja til virkjunarframkvæmda# (umræður utan dagskrár), SvG
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 123. lþ.

[11:01]

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Rannveigu Guðmundsdóttur fyrir að hreyfa þessu máli. Ég vil einnig gagnrýna harðlega viðbrögð hæstv. ráðherra. Mér fannst þau ekki sanngjörn í garð þingmannsins vegna þess að hér er bersýnilega um að ræða mál sem þarf að ræða í þessari stofnun og ég teldi reyndar eðlilegast að þetta mál yrði rætt mjög rækilega í hv. iðnn. Þetta er þannig mál. Þetta er hluti af raforkukerfismálunum í heild, orkuframleiðslumálunum í heild. Ég vil taka undir þau sjónarmið sem hér hafa komið fram að á málefni Hitaveitu Suðurnesja er ekki hægt að horfa eingöngu út frá hagsmunum þeirrar veitu. Það er algerlega fráleitt að setja hlutina þannig upp, ef það er ekki beinlínis háskalegt fyrir okkar raforkukerfi í heild.

Ég tel hins vegar að nauðsynlegt sé að ítreka og benda á í þessari umræðu að raforkukerfi okkar og raforkuframleiðslukerfi landsmanna er í ógöngum eins og er. Það er að brotna niður. Það eru endalausar árásir uppi á Landsvirkjunarkerfið, oft afskaplega ósanngjarnar árásir, árásir sem að nokkru leyti byggjast á því að menn vilja fá að nota þá kosti sem þeir eru með burt séð frá því hvað tekur svo við. Veruleikinn er auðvitað sá að Landsvirkjun er með feikilega miklar félagslegar jöfnunarskyldur á sér og áður en við tökum ákvörðun um að hleypa öðrum aðilum að í stórum stíl, þá verðum við að sjá fram úr því hverjir eiga að axla þessar byrðar, hverjir eiga að bera þessar skyldur sem jöfnunarkerfið og lög landsins leggja á Landsvirkjun. Við höfum ekki séð í gegnum það mál.

Hins vegar, eins og ég segi, herra forseti, er þetta kerfi að brotna niður. Villinganesvirkjun er að fara af stað. Það hefur verið gerður samningur um Nesjavallavirkjun. Það er því augljóst mál að kerfið er að brotna niður og þá á auðvitað að semja líka við Hitaveitu Suðurnesja og svara þeirra bréfum. Ég tel að staðan sé þannig núna að eðlilegast væri að hæstv. iðnrh. gæfi Hitaveitu Suðurnesja kost á sams konar samningi og Hitaveita Reykjavíkur fékk. En ég óttast að það sé ekki það sem Hitaveita Suðurnesja er að fara fram á, heldur það að hún geti með nýrri orku sótt inn á nýjan markað og jafnvel gamlan markað sem Landvirkjun hefur haft og þar held ég að vandinn liggi.