Tilkynning um dagskrá

Föstudaginn 18. desember 1998, kl. 10:32:21 (2563)

1998-12-18 10:32:21# 123. lþ. 45.91 fundur 179#B tilkynning um dagskrá#, Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 45. fundur, 123. lþ.

[10:32]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Í dag kl. 4 síðdegis fer fram umræða utan dagskrár um útboð á rekstri hjúkrunarheimilis fyrir aldraða. Málshefjandi er Svavar Gestsson. Heilbrrh., Ingibjörg Pálmadóttir, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.

Þá vill forseti tilkynna að síðar í dag fara fram atkvæðagreiðslur.