[prenta uppsett í dálka] 45. fundur, 123. lþ.
Einar K. Guðfinnsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Það var einhver misskilningur hjá hv. þm. Lúðvíki Bergvinssyni að ég hefði verið að lýsa eftir stefnu Alþfl. eða jafnaðarmanna. Ég lýsti því þvert á móti yfir að ég teldi að nú ætti að hætta leitinni. Hún hefði verið falin á svo góðum stað að við hinir yrðum bara að viðurkenna það að við mundum aldrei finna hana, mundum aldrei hafa það af á þessum sólarhring að leiða þessa stefnu fram í dagsljósið og við skyldum þá bara viðurkenna það og við skyldum bara vinna út frá því. Enda er það kannski ekki stóra málið. Stóra málið er hvernig við ætlum að leysa mikinn vanda sem við stöndum frammi fyrir í ljósi þeirrar dómsniðurstöðu sem fékkst í byrjun þessa mánaðar. Stóra verkefnið að mínu mati í þessu sambandi er hvernig við getum tryggt atvinnuréttindi þeirra manna sem hafa verið að sækja sjóinn og skapa þeim þannig rekstrarlegt öryggi.
Í öðru lagi sagði ég að ég teldi að í meginatriðum hefði okkur tekist býsna vel upp á undanförnum árum í því að breyta fiskveiðistefnunni hvað áhrærði smábátana. Við sköpuðum þeim ákveðin sóknartækifæri, sköpuðum þeim ákveðið öryggi sem gerði það að verkum að þær byggðir sem best lágu við þessum hefðbundnu þorskveiðimiðum fengu að njóta nálægðar sinnar. Og við sáum það t.d. á Vestfjörðum þar sem byggðin er hvað veikust að á sama tíma og þessar byggðir voru að tapa í kvótakerfinu, þá voru þær að vinna upp og vega upp að nokkru leyti þetta áfall með því að styrkja sig í smábátakerfinu. Þetta kerfi var sóknartengt. Það skapaði þess vegna færi fyrir þær byggðir sem næst lágu miðunum. Menn fengu að njóta staðarkosta sinna og það finnst mér að eigi að vera grundvallaratriði varðandi fiskveiðistjórnarkerfi.
Þessi mál voru m.a. rædd hér þegar við fjölluðum um byggðaáætlun hæstv. forsrh. sem var hér til umfjöllunar á þeim tíma. Þá voru menn kannski ekki alveg sammála um þessar forsendur. En þetta tel ég vera meginatriði.