Stjórn fiskveiða

Föstudaginn 18. desember 1998, kl. 22:50:10 (2668)

1998-12-18 22:50:10# 123. lþ. 45.3 fundur 343. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðileyfi o.fl.) frv. 1/1999, 344. mál: #A veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands# (grásleppuveiðar) frv., Forseti StB
[prenta uppsett í dálka] 45. fundur, 123. lþ.

[22:50]

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Vegna þessara óska vill forseti segja að þegar komið er fram undir jól þá verður að ganga til verka eins og best getur orðið. Það er eina svarið sem hægt er að gefa á þessari stundu. Forseti hefur óskað eftir því að hægt verði að ná fundum með forseta og formönnum þingflokka að lokinni þessari umræðu.