Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1999

Laugardaginn 19. desember 1998, kl. 21:19:47 (2821)

1998-12-19 21:19:47# 123. lþ. 47.20 fundur 321. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum 1999# (breyting ýmissa laga) frv. 158/1998, Frsm. meiri hluta VE
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 123. lþ.

[21:19]

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. frá efh.- og viðskn. vegna þess frv. sem hæstv. forseti gat um að væri á dagskrá. Nefndin leggur ekki til miklar breytingar. Við 1. gr. er gerð ákveðin brtt. um fjárhæðir sem getið er um á nál., það að í stað fjárhæðinnar 462 komi 480 sem þar er getið um. Síðan vil ég, hæstv. forseti, boða það að í brtt. við 3. umr. mun ég leggja til að í 2. gr. verði breytt ákvæðum um gildistöku þannig að gildistaka dýralæknafrv. taki gildi 1. desember 1999 í stað 1. janúar 2000.