Ferill 32. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 32 — 32. mál.



Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um ár aldraðra.

Frá Svavari Gestssyni.



1.      Hvað hyggst ríkisstjórnin gera í tilefni af ári aldraðra?
2.      Hefur verið haft samráð við samtök aldraðra í tilefni af ári aldraðra?
3.      Verður haft samráð við samtök launafólks og lífeyrissjóðina um ár aldraðra?
4.      Verður um þverpólitískt samstarf að ræða með fulltrúum allra flokka?
5.      Hvenær mun ríkisstjórnin kynna Alþingi áætlanir sínar í tilefni af ári aldraðra?