Ferill 33. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 33 — 33. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um söfnunarkassa.
Frá Ögmundi Jónassyni.
1. Hvað hefur ríkisstjórnin aðhafst í framhaldi af því að Alþingi vísaði til hennar í apríl sl. frumvörpum til laga um brottfall laga nr. 73/1994, um söfnunarkassa, og um breyting á lögum um Happdrætti Háskóla Íslands, nr. 13/1973?
2. Kemur til álita að fella úr gildi eða endurskoða fyrrgreind lög?