Ferill 38. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 38 — 38. mál.



Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um rekstrarkostnað Rafmagnsveitna ríkisins.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hver eru laun, lífeyrisréttindi og önnur starfskjör stjórnenda Rafmagnsveitna ríkisins, sundurliðað eftir stöðuheitum, fjölda stjórnenda og kynjum, föstum launum, öðrum greiðslum eins og stjórnargreiðslum og hvers konar þóknunum og hlunnindum, þ.m.t. bílahlunnindum og risnu?
     2.      Hver hefur verið ferðakostnaður erlendis árin 1993–97, að báðum árum meðtöldum, hve margar ferðir voru farnar hvert ár um sig, hvernig sundurliðast kostnaðurinn milli flug­fargjalda, gistikostnaðar og dagpeningagreiðslna? Sérstaklega er óskað eftir sundurliðun á fjölda ferða stjórnenda og maka þeirra, svo og árlegum sundurliðuðum kostnaði við þær.
     3.      Hvaða reglur gilda um bifreiðahlunnindi og risnu- og ferðakostnað stjórnenda?
     4.      Hver var árlegur risnukostnaður 1993–97, að báðum árum meðtöldum, sundurliðaður eftir
       a.      fastri risnu greiddri einstökum stjórnendum,
       b.      risnu greiddri samkvæmt reikningi,
       c.      helstu þáttum risnunnar og kostnaði við hvern þeirra, auk helstu tilefna hennar?
     5.      Hefur verið farið í laxveiðiferðir á vegum Rafmagnsveitna ríkisins? Ef svo er, hvernig skiptist árlegur kostnaður af þeim sl. fimm ár milli laxveiðileyfa og annarra útgjalda? Hve margar ferðir voru farnar á ári hverju, hvert var farið, hverjir voru þátttakendur í slíkum ferðum og hver voru tilefni þeirra?
     6.      Hverjir taka ákvarðanir um ferðir stjórnenda erlendis og laxveiðar sé um þær að ræða?


Skriflegt svar óskast.