Ferill 50. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 50 — 50. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um áhrif hvalveiðibanns.
Frá Einari K. Guðfinnssyni.
1. Hver verða áhrif þess á einstaka nytjastofna við Íslandsstrendur að viðhalda banni við hvalveiðum?
2. Hver gætu orðið efnahagsleg áhrif áframhaldandi hvalveiðibanns?