Ferill 57. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 57 — 57. mál.



Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um miðlægan gagnagrunn og vísindasiðanefnd.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



1.      Hvað veldur því að ráðherra ætlar að hafa að engu álit vísindasiðanefndar á hugmyndum ráðuneytisins um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði?
2.      Telur ráðherra sér stætt á því að ganga gegn áliti nefndarinnar, sbr. umsögn hennar til ráðuneytisins, dags. 3. sept. 1998, og ákvæði laga nr. 74/1997, um réttindi sjúklinga, og reglugerðar um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 449 frá 4. júlí 1997?
3.      Hver var tilgangur með skipun nefndarinnar ef ekki á að fela henni að fjalla um rannsóknir sem byggjast á upplýsingum úr miðlægum gagnagrunni á heilbrigðissviði, ef heimilaður verður að lögum, heldur setja þau mál í allt annan farveg?