Ferill 60. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 60 — 60. mál.



Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um viðbrögð við ályktun fulltrúa ESB- og EES-ríkja um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



    Hver eru viðbrögð dómsmálaráðuneytisins við ályktun fulltrúa Evrópusambands- og EES-ríkja (Data Protection Commissioners) á 20. alþjóðaráðstefnunni um öryggi tölvu­gagna, 16.–18. september 1998, þar sem lýst er miklum áhyggjum af áformum um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði hérlendis?