Ferill 62. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 62 — 62. mál.



Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um persónuvernd og gagnagrunn á heilbrigðissviði.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



1.      Hefur ráðherra hlutast til um að leitað verði álits sérfróðra aðila, innlendra og erlendra, t.d. innan Evrópuráðsins og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, um álitaefni er snerta persónuvernd og hugmyndir heilbrigðisráðuneytisins um gagnagrunn á heilbrigðissviði?
2.      Ef slíks álits hefur ekki verið leitað, hvenær er þá fyrirhugað að gera það og til hverra verður leitað?