Ferill 65. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 65 — 65. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um úttekt á hávaða- og hljóðmengun.
Fl m.: Hjörleifur Guttormsson, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Lúðvík Bergvinsson,
Kristín Halldórsdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir, Ragnar Arnalds.
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta fara fram víðtæka úttekt á hávaða- og hljóðmengun hérlendis og leggja fyrir næsta þing niðurstöður hennar og tillögur til úrbóta.
Greinargerð.
Hávaði og hljóðmengun af margvíslegu tagi fer vaxandi ár frá ári. Þar er ekki aðeins um að ræða hávaða frá umferð og atvinnurekstri heldur einnig tónlist og talað orð úr hátölurum á almannafæri, í almenningsfarartækjum, verslunum, veitinga- og samkomuhúsum, líkamsræktarstöðvum og á útivistarsvæðum ætluðum almenningi. Hljóðmengun yfir ákveðnum mörkum getur verið heilsuspillandi, valdið skemmdum á heyrn auk truflunar og margvíslegra sálrænna áhrifa sem valdið geta andlegri vanlíðan. Því er brýnt að af opinberri hálfu sé unnið skipulega gegn óþörfum og truflandi hávaða til verndar heilsu manna og til að tryggja rétt einstaklingsins til ómengaðs umhverfis. Hávaði frá tólum og tækjum er röskun sem halda ber í lágmarki og enginn á að þurfa að þola síbylju úr hátölurum í formi talaðs orðs eða hljómflutnings sem hann kærir sig ekki um. Þar sem margir koma saman á réttur minni hluta gagnvart hljóðmengun að vera jafnríkur og meiri hluta, jafnt á vinnustað sem á almannafæri.
Undanfarið hafa orðið miklar umræður um hávaðamengun frá umferð. Talið er að allt að 1.700 íbúðir í Reykjavík séu þannig staðsettar að hávaði við húsvegg sé óleyfilegur og dæmi eru um svo mikinn hávaða í íbúðarhúsnæði að heilu fjölskyldurnar sofa ekki á nóttunni nema með því að taka sterkar svefntöflur.
Yfirvöld eru nú orðin mun meðvitaðri en áður um skaðsemi hljóðmengunar og má í því sambandi nefna að 16. júlí 1996 samþykkti borgarráð að veita aukið fé til embættis borgarverkfræðings til að flýta gerð tillagna um hvernig megi bregðast við umferðarhávaða í ýmsum hverfum Reykjavíkur.
Samkvæmt upplýsingum frá Hollustuvernd ríkisins hefur aldrei verið gerð heildarúttekt á hávaða á Íslandi, en talið er víst að hérlendis búi margir við hávaða sem er langt yfir settum viðmiðunarmörkum. Telja verður mjög brýnt að gerð verði úttekt á hávaða þannig að unnt sé að leggja grunn að úrbótum. Þar við bætist þörfin á að settar verði reglur til að vernda fólk fyrir hávaða á almannafæri, en í því skyni getur einnig verið þörf á könnun á ríkjandi aðstæðum.
Um hávaðamengun hefur áður verið fjallað og ályktað á Alþingi. Á 110. löggjafarþingi var samþykkt svohljóðandi þingsályktunartillaga sem flutt var af Ragnari Arnalds og fleiri þingmönnum: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta semja frumvarp til laga um varnir gegn hávaða- og hljóðmengun.“ Í greinargerð með tillögunni var vitnað til blaðagreinar sem Steingrímur G. Kristjánsson ritaði í Morgunblaðið 24. september 1987.
Þann 30. apríl 1992 svaraði forsætisráðherra fyrirspurn á Alþingi um hvað liði samningu frumvarps um þetta efni. Í svarinu kom fram að ekki væri talin þörf á nýrri löggjöf á þessu sviði. Í því sambandi vísaði ráðherra til laga nr. 81/1988, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, og mengunarvarnareglugerðar, nr. 386/1989, með síðari breytingum, sem og heilbrigðisreglugerðar, nr. 149/1990, með síðari breytingum. Síðastliðinn vetur voru samþykkt ný lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og er mengun skilgreind í 3. gr. laganna og kemur þar fram að með mengun er m.a. átt við hávaða.
Samkvæmt þessu hefur það verið mat framkvæmdarvaldsins að ekki skorti lagaheimildir til að bregðast við hávaða- og hljóðmengun. Það breytir ekki þeirri staðreynd að í íslenskum rétti er ekki að finna um þetta efni heildarlöggjöf sem kann að vera æskileg til að tryggja betur en nú er réttarstöðu manna gagnvart hávaða- og hljóðmengun og auðvelda um leið framkvæmdarvaldinu aðhald og eftirlit.
Flutningsmenn hafa látið kanna hvar er að finna helstu laga- og reglugerðarákvæði um hávaðamengun (sjá fylgiskjal I).
Á þessu stigi er brýnast að aflað verði glöggra upplýsinga um ástand þessara mála hér á landi til að undirbúa aðgerðir og réttarbætur til að verjast óæskilegri og sívaxandi hávaða- og hljóðmengun á almannafæri.
Fylgiskjal I.
Helstu reglur sem gilda um hávaðamengun samkvæmt íslenskum rétti.
Í lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, er í 3. gr. að finna eftirfarandi skilgreiningu á mengun: „ Með mengun er átt við það þegar örverur, efni og efnasambönd og eðlisfræðilegir þættir valda óæskilegum og skaðlegum áhrifum á heilsufar almennings, röskun lífríkis eða óhreinkun lofts, láðs eða lagar. Mengun tekur einnig til ólyktar, hávaða, titrings, geislunar og varmaflæðis og ýmissa óæskilegra eðlisfræðilegra þátta.“ Þá kemur einnig fram í lögunum að setja skuli í reglugerð ákvæði um hávaða og titring þar sem fram koma viðmiðunarmörk fyrir leyfilegan hávaða og titring með hliðsjón af umhverfi. Hefur reglugerð á grundvelli laganna ekki verið sett.
Í 7. kafla mengunarvarnareglugerðar nr. 48/1994, sbr. reglugerð nr. 378/1994, er að finna ákvæði um varnir gegn hávaðamengun. Þar kemur fram að mengun af völdum hávaða skal vera undir ákveðnum viðmiðunarmörkum sem koma fram í 5. viðauka með reglugerðinni og að enn fremur skuli leitast við að uppfylla þau leiðbeiningarmörk sem fram koma í viðaukanum.
Þá kemur fram í reglugerðinni að forráðamönnum fyrirtækja og stofnana er skylt að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir óþægindi af völdum hávaða. Einnig ber eigendum vélknúinna ökutækja að sjá svo um að farartæki þeirra valdi ekki óþarfahávaða. Loks kemur fram að við allar framkvæmdir, svo sem byggingar, gröft og gatnagerð, skuli þess sérstaklega gætt að ekki verði óþægindi af völdum hávaða. Ef sérstakar óviðráðanlegar aðstæður eru fyrir hendi er mögulegt að fá leyfi fyrir því að hávaði sé yfir viðmiðunarmörkum.
Eins og áður segir koma viðmiðunarmörk fyrir hámarkshávaða fram í 5. viðauka mengunarvarnareglugerðarinnar, en þar er að finna reglur um hávaða utan húss. Var viðaukanum breytt með reglugerð nr. 378/1994. Í þessum reglum koma fram viðmiðunargildi og leiðbeiningargildi fyrir hljóðstig í og við íbúðarhúsnæði, kennslu- og sjúkrastofur, hljóðstig frá fyrirtækjum og annarri starfsemi og hljóðstig frá umferð. Við nýskipulag hverfa skal taka mið af þessum viðmiðunargildum, en ef um er að ræða svæði þar sem skipulag eða starfsemi er fyrir má veita undanþágur varðandi umferðarhávaða. Ef upp koma tilvik sem reglurnar ná ekki yfir skal velja viðurkennda hávaðareglu sem stuðst er við í slíkum tilvikum á einhverju Norðurlandanna.
Í 22. kafla heilbrigðisreglugerðar nr. 149/1990 er að finna ákvæði um hávaða og titring. Þar kemur fram að forráðamönnum stofnana og fyrirtækja er skylt að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að draga úr eða koma í veg fyrir heilsuspillandi hávaða eða hávaða sem veldur óþægindum. Einnig kemur fram í sömu reglugerð að unnt er að krefjast sérstaks búnaðar á veitinga- og samkomuhúsum til að fyrirbyggja að gestir verði fyrir óþægindum eða heyrnarskaða af völdum hávaða.
Í lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, er að finna ákvæði er stuðla eiga að öruggu og heilsusamlegu starfsumhverfi, m.a. er í lögunum mælt fyrir um setningu frekari reglna um varnir gegn hávaða á vinnustöðum. Frekari fyrirmæli um hávaðavarnir er að finna í ýmsum reglugerðum. Má þar nefna reglur nr. 500/1994, um hávaðavarnir á vinnustöðum og heyrnareftirlit starfsmanna, en þeim reglum er ætlað að koma í veg fyrir heyrnarskemmdir og skaðleg áhrif af völdum hávaða.
Í 35. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987, kemur fram að ökumaður vélknúins ökutækis skuli haga meðferð þess og akstri þannig að frá því stafi ekki hávaði að óþörfu.
Þá er einnig að finna ákvæði í flestum lögreglusamþykktum sem banna hvers konar hávaða á almannafæri sem líklegur er til að valda ónæði eða truflun.
Fylgiskjal II.
Kristín Marja Baldursdóttir:
Enginn friður. Úttekt blaðamanns.
(Morgunblaðið 9. ágúst 1998.)
Enginn friður.
Hávaðamengun er vandamál í Evrópu, þar sem menn kvarta undan hávaða frá hljómflutningstækjum, flugvélum og bifreiðum. Kristín Marja Baldursdóttir kannaði hvort hávaðinn væri svipaður á Íslandi, og kom í ljós að hann er síst minni en í öðrum löndum.
Sumarið er stutt á Íslandi. Flesta langar því til að njóta þess sem best og vera úti í góða veðrinu, ganga í guðsgrænni náttúrunni, fara upp í sumarbústað, grilla í garðinum sínum eða spóka sig í bænum. En einmitt á þessum dýrmæta árstíma þegar allt er í blóma og menn ættu að njóta fegurðar og fuglasöngs fara Íslendingar í gang og hefja hávaðasamar framkvæmdir. Byggja hús, leggja vegi, rífa upp götur, grafa skurði, berja, bora, saga, steypa og hamast á
loftpressum þar til allt kvikt í kringum þá hefur lagt á flótta.
En þeir sem reyna að flýja til fjalla í von um að finna þögn og frið verða oft fyrir vonbrigðum, því um hálendið þeysa fjallabílar búnir kraftmiklum vélum og yfir fljúga þotur með þrumugný.
Hávaði í Evrópu.
Hávaði er fyrir löngu orðinn vandamál víða um heim. Fyrir nokkru var fjallað um hávaðamengun í „Time“, og þar kemur fram að samkvæmt skýrslu Umhverfisstofnunar Evrópu verða um 450 milljón Evrópubúa fyrir ónæði af völdum hávaða sem mælist yfir 55 desibel. Það hljóðstig getur valdið svefntruflunum og árásargjarnri hegðun. Áætlað er að um 113 milljónir Evrópubúa líði fyrir hávaða sem mælist yfir 65 desibel og veldur of háum blóðþrýstingi, og um 10 milljónir manna fyrir hávaða sem er yfir 75 desibel, og veldur mikilli streitu, auknum hjartslætti og hugsanlegu heyrnartapi.
Fyrir utan þann hávaða sem fólk veldur með hátt stilltum hljómflutningstækjum og ýmsum skemmtunum og framkvæmdum utanhúss, er mest kvartað yfir hávaða frá flugvélum, lestum og bifreiðum.
Hávaðasamasta þjóðin í Evrópu er Grikkir samkvæmt rannsókn sem OECD gerði árið 1996. Í Aþenu líða 60% borgarbúa fyrir hávaða sem mælist yfir 75 desibel og er mengun af völdum hávaða að verða eitt mesta heilbrigðisvandamál þjóðarinnar.
Um 70% þýsku þjóðarinnar verða fyrir ónæði af völdum umferðarhávaða, og í Hollandi er heilsu um milljón manna sem búa í grennd við Schiphol flugvöllinn stefnt í voða.
Þeir sem unna kyrrðinni mega sín lítils. Þó eru nokkrir úr þeim hópi farnir að láta til sín heyra. Tæplega fimmtug bresk kona, Valerie Gibson, hóf baráttu og stofnaði samtök gegn hávaðamengun árið 1991, þegar hún varð að flytja úr húsi sínu vegna nágrannakonu sem neitaði að lækka í hljómflutningstækjum sínum. Í skoðanakönnun sem gerð var í Bretlandi kom í ljós að hávaðasöm tónlist var sú tegund hávaða sem flestir kvörtuðu undan. „En fólk sem kvartar mætir fordómum,“ segir Gibson. „Flestir kjósa að flytja heldur en að lenda í átökum við nágranna.“
Fyrir utan innanhússhávaða líða Evrópubúar mest fyrir hávaða frá bíla- og flugumferð. Inni í húsum sem standa við Périphérique-hringtorgið í París mælist hávaðinn 90 desibil þrátt fyrir tvöfalt gler í gluggum og hljóðmúr meðfram vegum. Umferðarhávaði nálægt íbúðahúsum er hvarvetna mikið vandamál og í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna hafa menn gert undirgöng fyrir bílaumferðina og breytt gömlum umferðargötum í garða og opin leiksvæði. Slíkar framkvæmdir eru mjög kostnaðarsamar og telja bandarískar umhverfisstofnanir að til sé mun ódýrari leið til að draga úr þeirri hávaðamengun sem bílaumferð veldur. Hún er sú að draga úr hraðanum.
Ef hámarkshraði er lækkaður úr 65 km/klst niður í 48 km/klst., hefur það sömu áhrif og ef helmingur bifreiða á umferðargötum væri fjarlægður.
Fólk sem býr nálægt stórum flugvöllum á ekki síður við hávaða að etja en íbúar við umferðargötur. Rannsóknir sem gerðar voru í München í Þýskalandi sýndu að hávaðinn frá flugvellinum þar hefði áhrif á námsgetu barna sem bjuggu í nálægð hans. Í ljós kom að hávaðinn hafði skert langtímaminni þeirra og tungumálaskilning. Flugvöllurinn var færður árið 1992 og tveimur árum síðar hafði námsgeta þessara barna batnað. En að sama skapi versnaði námsgeta þeirra skólabarna sem voru svo óheppin að búa nálægt þeim stað sem flugvöllurinn var færður til.
Íslenskur hávaði.
Ætla mætti að umhverfishávaði hrjáði ekki íslensku þjóðina eins fámenn og hún er. En þrátt fyrir fámennið heyrast hljóð úr horni.
Umferðarhávaði er síst minni hér en annars staðar og mun varla minnka í framtíðinni því stöðugt stækkar bílafloti landsmanna.
Um 151 þúsund bifreiðar eru á skrá í landinu, þar af um 137 þúsund fólksbílar. Heimilin í landinu eru um 90 þúsund og munu því mörg heimili hafa minnst tvo bíla til umráða. Stöðug aukning hefur verið í bifreiðainnflutningi landsmanna frá árinu 1994 og voru nýskráningar bifreiða til dæmis fjórðungi fleiri nú en í fyrra.
Fjölgun bifreiða skapar meiri hávaðamengun og kallar jafnframt á meiri framkvæmdir í gatnagerð. Við umferðarhávaðann bætist því hávaðinn frá gatnagerðinni sem er ekki svo lítill þegar malbika þarf götur og breikka með viðeigandi vélum og loftpressum.
Vélahávaðinn er ekki eingöngu bundinn við gatnagerð. Í Reykjavík til dæmis, má finna margar hávaðasamar verksmiðjur, nánast inni í miðjum íbúðahverfum. Sumar eru starfræktar með hávaða og látum jafnt að nóttu sem að degi.
Kvartanir vegna umhverfishávaða í Reykjavík berast til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Gunnar Svavarsson, umhverfisverkfræðingur, segir að þó nokkuð hafi verið kvartað vegna umferðarhávaða, einkum vegna umferðarþungans við Miklubraut og Hringbraut, eins og oft hefur komið fram í fréttum. „Umferðarhávaðinn við Hringbraut hefur mælst um það bil 70 desibel og þar er umferð stöðug allan sólarhringinn. Hins vegar hafa fáar kvartanir borist vegna hávaða frá Reykjavíkurflugvelli. Það er helst að íbúar húsa sem standa næst flugvellinum kvarti þegar menn eru að læra á litlar vélar og æfa snertilendingarflug.“
En umhverfishávaðann er alls staðar að finna.
Árið 1996 bárust 62 kvartanir til Heilbrigðiseftirlitsins. Þær voru meðal annars vegna hávaða frá bílaumferð, veitingastöðum, vegna ýmiss konar atvinnustarfsemi, snjómoksturs, loftræstiútblásturs, bakarís, tívolís, loftpressu, kirkjuklukkna, bílskúrsstarfsemi, útihátalara, kvikmyndasýninga, skips í höfn, kælis, ruslagámalosunar, skóverkstæðis, tónleika, flugs, trésmíðaverkstæðis, vatnsdælu, frystikistu, þungs dyns, og lágtíðnihljóðs. Í 30 tilvikum þótti ástæða til að gera mælingar.
Mesti hávaði sem Gunnar hefur mælt reyndist vera 130 desibel og kom frá riffli. „Hávaði á skemmtistöðum getur einnig orðið mikill. Hann hefur mælst 90 desibel og getur farið yfir 100 desibel. Frá loftpressu er hávaðinn svipaður, og jafnvel frá sláttuvélum getur hávaðinn mælst 80 til 90 desibel. En það er hávaði sem menn vita að tekur enda og geta því fremur þolað en hávaða frá stöðugri umferð sem veldur streitu og þreytu. Annars er það mjög einstaklingsbundið hvað menn túlka sem hávaða. Það sem sumir heyra varla getur verið hinn versti hávaði í eyrum annarra.“
Gunnar vill ekki fullyrða um það hvort Íslendingar séu hávaðasöm þjóð, en segir að flest virðist þó benda til að þeir séu það þegar þeir skemmti sér.
Þegar Íslendingar verða hávaðasamir í heimahúsum eða á veitingastöðum og ganga fram af samferðamönnum sínum, er leitað á náðir lögreglunnar. Árið 1997 fékk Lögreglan í Reykjavík 1301 tilkynningu um hávaða innandyra.
Að sögn Karls Steinars Valssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns, getur sá hávaði verið af mörgum toga, til að mynda vegna heimilisofbeldis, of hátt stilltar tónlistar eða annars konar hávaða, sem veldur íbúum í húsinu eða nærliggjandi húsum miklu ónæði. Tilkynningar um hávaða utandyra voru 541. Þær komu margar frá íbúum sem búa í gönguleiðum við skemmtistaði.
Tónleikar allan daginn.
Íslendingar hljóta að vera mjög tónelsk þjóð, því hvar sem þeir koma er verið að leika tónlist og gildir þá einu hvort þeir eru að skemmta sér eða vinna sín daglegu störf.
Dagur í lífi ungrar konu sem til að mynda vinnur í tískuverslun, gæti verið með eftirfarandi hætti. Tónleikahaldið byrjar strax í strætisvagninum að morgni til þegar hún heldur til vinnu sinnar. Í strætisvögnum er útvarp oft hátt stillt og verða menn þá að hlusta hvort sem þeim líkar betur eða verr. Þegar konan kemur til vinnu sinnar tekur vinnustaðasöngurinn við. Í tískuverslunum, einkum þeim sem ætlaðar eru ungu fólki, er það oftast reglan að skemmta mönnum með poppmúsik. Hvort það er til að örva kaupgleði viðskiptavina skal látið ósagt.
Að vinnudegi loknum fer hún í líkamsræktina til að auka styrk sinn og þol og þá fer nú að hitna í kolunum. Á þeim stöðum hreyfa menn sig nær eingöngu í takt við kraftmikla músik. Líklega er tilgangurinn sá að gera menn ofurlítið árásargjarna og þá um leið ósérhlífna í æfingunum.
Eftir púlið langar ungu konuna til að slaka á og fer með vinkonu sinni í bíó. Þær sjá hasarmynd með Harrison Ford og að sjálfsögðu er hljómburðurinn í góðu lagi enda til þess ætlast að skerandi tónlistin auki spennuna.
Ungfrúrnar eru upptjúnaðar eftir bíóferðina svo þær ákveða að fara á kaffihús og rabba saman yfir bjórkollu. Á íslenskum kaffihúsum er hins vegar ekki ætlast til þess að menn spjalli saman eftir klukkan ellefu. Vegna tónlistar sem getur mælst milli 80 og 90 desibel, verða menn að öskra hver á annan vilji þeir tjá sig. Hins vegar er ætlast til að menn drekki ört og mikið og mun það vera tilgangurinn með hávaðanum. Bjórkollurnar kalla að sjálfsögðu á leigubíl og hugsanlega gætu þær lent á leigubílstjóra sem vill endilega skemmta farþegum sínum með léttri sveiflu frá útvarpsstöð, en það er ekki óalgengt hér á landi.
Ekki er víst að tónleikum dagsins ljúki eftir miðnætti þegar unga konan er komin heim og undir sæng. Vel má vera að maðurinn á efri hæðinni sé í banastuði og leiki tónlist sem tilheyri því ástandi. Undir morgun festir unga konan kannski svefn, en þá er líka stutt í nýjan vinnudag. Með áframhaldandi tónleikum.
Sumarhávaði.
Það er enginn friður, alltaf verið að messa, sagði gamla fólkið stundum í gríni. En víst er að margur mundi heldur kjósa messuna en þá síbylju sem glymur í eyrum allan guðslangan daginn.
Tónlistin sem glumdi í eyrum ungu konunnar hefur ef til vill verið að hennar smekk. Það getur gert gæfumuninn. Stundum er tónlist hávaði og stundum ekki. Þeim sem finnst kannski óbærilegt að hlusta á þungarokkshljómsveitina Metallica, geta hlustað á annan kafla fimmtu sinfóníu Mahlers á fullum styrk og trallað með. Tónlist væri því ekkert vandamál ef menn héldu henni útaf fyrir sig.
Sumarið er tími framkvæmda á Íslandi og löng hefð fyrir því að bretta upp ermarnar þegar frost er farið úr jörðu. Þótt veðrið sé prýðilegt bæði á vorin og á haustin kjósa menn að gera það sem gera þarf á sumrin. Þá hefst vertíð iðnaðar- og vegagerðarmanna. Um alla borg er verið að smíða og saga, steypa og bora, og oftar en ekki fylgir aðgerðunum hávær tónlist úr ferðatækjum. Þeir sem þrá fuglasönginn taka til fótanna ef þeir mögulega geta. Margir fara í sumarbústað
Sumarbústaðaeign landsmanna hefur aldrei verið meiri en nú og tvöföld búseta orðin snar þáttur í lífsháttum þeirra. Það er þó ekki tryggt að menn geti hlustað á fuglana í sveitinni fremur en í borginni þegar mest gengur á. Sumir þurfa að slá litla blettinn fyrir utan bústaðinn sinn, stundum snemma á sunnudagsmorgni, og aðrir eru svo handvissir um að nágrönnum í næstu bústöðum leiðist þögnin, að þeir þenja útvarpstæki sín hvað þeir geta meðan þeir sýsla utandyra.
Friður í jörðu.
Fuglasöngsunnendur eiga því ekki sjö dagana sæla á sumrin. Fuglarnir kannski ekki heldur. En ekki er öll von úti. Menn hafa bent á nokkra staði þar sem sæmileg kyrrð ríkir.
Þótt undarlegt megi virðast fær hálendið ekki háa einkunn hvað kyrrðina snertir. Þar þykir fyrirgangur í fjallabílum of mikill og hávaði frá þotum og rellum sem eru á eilífu flugi yfir jökla og fjöll hvimleiður. Þó má finna þar kyrrláta staði.
Margir benda á golfvelli sem friðsælan stað. Þeir liggja í fæstum tilvikum nálægt umferðargötum, íbúðarhús eru í hæfilegri fjarlægð og ekki er til siðs að pútta við undirleik tónlistar.
Friðinn finna menn þó tvímælalaust við laxveiðiárnar. Þar er tónlist harðbönnuð og menn litnir hornauga sem tala hátt. Þar er hvíslað til að fæla ekki fiskinn og eina hljóðið sem eyrað nemur er niðurinn í ánni. Það er því ekki að undra þótt menn borgi háar fúlgur til að komast í slíka þagnarparadís.
Hjá þeim sem komast ekki upp á hálendið og hafa ekki efni á að fara í golf eða lax, vandast málið. Þó benti ein kona á kirkjugarðana sem kyrrlátan stað. Þar er aldalöng hefð fyrir þögninni og þangað þyrpast fuglarnir. Þar ríkir semsagt friður, bæði ofar moldu, og í jörðu.
Fylgiskjal III.
Hávaði er heilsuspillandi. Leiðari.
(Morgunblaðið 11. ágúst 1998.)
Hávaði og hljóðmengun er vaxandi vandamál víða um heim, eins og fram kom í umfjöllun Morgunblaðsins í fyrradag. Umhverfisstofnun Evrópu telur að um 113 milljónir Evrópubúa verði fyrir ónæði af völdum hávaða sem mælist yfir 65 desibil, sem orsakað getur háan blóðþrýsting. Þar af verða um 10 milljónir fyrir hávaða, sem mælist yfir 75 desibil, en hávaði af þeirri gráðu getur aukið hjartslátt, valdið mikilli streitu og skert heyrn. Hljóðmengun af þessu tagi stafar einkum frá umferð, atvinnurekstri, veitinga- og samkomuhúsum, verslunum og hátölurum á almannafæri.
Hér á landi hefur hljóðmengun vaxið ár frá ári, einkum frá umferð. Í októbermánuði sl. var lögð fram tillaga til þingsályktunar um víðtæka úttekt á hávaða og hljóðmengun. Í greinargerð segir m.a.: „Talið er að allt að 1.700 íbúðir í Reykjavík séu þannig staðsettar að hávaði við húsvegg [frá umferð] sé óleyfilegur og dæmi eru um svo mikinn hávaða í íbúðarhúsnæði að heilu fjölskyldurnar sofa ekki á nóttunni nema með því að taka svefntöflur … Samkvæmt upplýsingum frá Hollustuvernd ríkisins hefur aldrei verið gerð heildarúttekt á hávaða á Íslandi, en talið er víst að hérlendis búi margir við hávaða sem er langt yfir viðmiðunarmörkum.“
Staðreynd er að hljóðmengun yfir ákveðnum mörkum getur verið heilsuspillandi, valdið skemmd á heyrn, auk truflunar á friðhelgi heimila og andlegrar vanlíðunar þeirra er fyrir verða. Það er meir en tímabært, eins og lagt er til í umræddri þingsályktunartillögu, að gerð verði úttekt á hljóðmengun hér á landi, einkum í þéttbýli, svo unnt verði að leggja grunn
að úrbótum. Mikilvægt er að af hálfu hins opinbera, bæði ríkis og sveitarfélaga, sé unnið skipulega og markvisst gegn óþörfum og truflandi hávaða „til verndar heilsu manna og til að tryggja rétt einstaklingsins til ómengaðs umhverfis“.