Ferill 68. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 68 — 68. mál.



Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um hugmyndir um starfsemi erlendra kvikmyndavera á Íslandi.

Frá Kristjáni Pálssyni.



     1.      Er fyrirhugað að gera einhvers konar frísvæðasamning um kvikmyndaiðnað á Íslandi?
     2.      Hefur skýrsla um frísvæði á Suðurnesjum sem afhent var utanríkisráðherra 15. nóvember 1995 verið skoðuð af viðskiptaráðuneytinu þannig að kvikmyndaver gæti risið á grunni niðurstaðna hennar?
     3.      Er fyrirhugað að leggja fram frumvarp til laga sem geri mögulegt að fyrirtæki eins og kvikmyndaver hefðu frísvæðakjör hér á landi?