Ferill 69. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 69 — 69. mál.



Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um íbúð Búnaðarbankans í Lundúnum.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hversu margir hafa fengið afnot af íbúð Búnaðarbankans í Lundúnum frá því að hún var tekin á leigu?
     2.      Hversu margir þeirra voru:
       a.      almennir starfsmenn bankans,
       b.      yfirmenn í bankanum aðrir en bankastjórar,
       c.      bankastjórar,
       d.      bankaráðsmenn,
       e.      ráðherrar,
       f.      alþingismenn,
       g.      ættingjar starfsmanna,
       h.      ættingjar bankastjóra,
       i.      ættingjar bankaráðsmanna,
       j.      aðrir?


Skriflegt svar óskast.