Ferill 70. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 70 — 70. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um samninga við bankastjóra Búnaðarbanka Íslands.
Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.
1. Voru gerðir samningar við starfandi bankastjóra Búnaðarbanka Íslands þegar honum var breytt í hlutafélag?
2. Ef svo var, í hverju voru þeir fólgnir? Var kveðið á um lífeyrismál, starfslokagreiðslur eða hlunnindi í þessum samningum?
3. Hversu mikið munu þessir samningar við bankastjórana kosta bankann á ári?
Skriflegt svar óskast.
Prentað upp.