Ferill 72. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 72 — 72. mál.



Fyrirspurn



til dóms- og kirkjumálaráðherra um dagsektir vegna umgengnisbrota.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.



     1.      Hve oft hefur dagsektum verið beitt vegna umgengnisbrota skv. 38. gr. barnalaga?
     2.      Hversu oft hefur fjárnámsheimild sömu greinar verið beitt til að innheimta dagsektir?
     3.      Hve miklar upphæðir hefur ríkissjóður innheimt samtals vegna dagsekta?
     4.      Hvert er mat ráðuneytisins á gildi slíkra sekta í ljósi reynslunnar?


Skriflegt svar óskast.