Ferill 129. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 129 —  129. mál.



Fyrirspurn



til samgönguráðherra um niðurlagningu loftskeytastöðvar á Siglufirði.

Frá Svanfríði Jónasdóttur.



     1.      Hver er ástæða þess að Landssími Íslands hf. ákvað að leggja niður loftskeytastöðina á Siglufirði?
     2.      Verða þau störf sem unnin eru við stöðina færð annað og þá hvert?
     3.      Hefur þeim starfsmönnum sem starfað hafa við loftskeytastöðina á Siglufirði verið boðin áframhaldandi vinna hjá Landssímanum? Ef svo er, við hvað eiga þeir þá að starfa og hvar?
     4.      Er eitthvað í nýrri tækni sem kallar á að þessi störf séu unnin annars staðar en á Siglufirði?