Ferill 153. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 153 —  153. mál.


Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um umönnunargreiðslur.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



    Hver eru áhrif breytinga sem gerðar voru í maí 1997 á lögum nr. 118/1993, um félags­lega aðstoð?
     a.      Hversu margir aðstandendur fatlaðra eða langveikra barna fá nú umönnunargreiðslur, hver er heildarfjöldi innan hvers greiðsluflokks og um hvaða upphæðir er að ræða í hverju tilviki?
     b.      Hversu margir fengu sambærilegar umönnunargreiðslur fyrir breytinguna, um hvaða hópa er þar að ræða og hver er fjöldinn innan hvers greiðsluflokks?
     c.      Hversu margir fá hærri greiðslur eftir breytinguna, um hvaða hópa er þar að ræða, hver er fjöldinn innan hvers greiðsluflokks og hver er hækkunin í hverju tilviki?
     d.      Hversu margir fá nú lægri umönnunargreiðslur en fyrir breytinguna, um hvaða hópa er að ræða, hver er fjöldinn innan hvers greiðsluflokks og hver er lækkunin á greiðslum í hverju tilviki?
     e.      Hversu margir þeirra sem áður fengu umönnunargreiðslur fá nú eingöngu umönnunarskírteini sem aðeins veita rétt til lyfja og læknishjálpar? Um hvaða hópa fatlaðra eða langveikra barna er þar að ræða, skipt eftir greiningu?
     f.      Hefur staða allra þessara barna sem um ræðir verið metin sérstaklega af fagaðilum eftir gildistöku laganna eins og gert var ráð fyrir í frumvarpinu? Ef ekki, hvaða forsendur voru þá fyrir breytingum í þeim tilvikum sem um ræðir?
     g.      Hver voru heildarútgjöld ríkisins vegna umönnunargreiðslna til foreldra fatlaðra og langveikra barna á árunum 1996 og 1997 á verðlagi þessa árs og hver eru áætluð út­gjöld árið 1998?


Skriflegt svar óskast.