Ferill 157. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 157 — 157. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um störf í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Frá Hjálmari Árnasyni.
1. Hversu mörg stöðugildi eru í Flugstöð Leifs Eiríkssonar?
2. Hvernig deilast þau á einstök svið?
3. Hversu mörg ný störf urðu til við breytingar á verslunarrekstri í flugstöðinni?
4. Hversu mörg ný störf er áætlað að skapist við stækkun stöðvarinnar?
Skriflegt svar óskast.