Ferill 165. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 167 — 165. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um nauðsynlegt iðgjald til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, lífeyrisdeildar alþingismanna, lífeyrisdeildar ráðherra og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga.
Frá Pétri H. Blöndal.
1. Hvert er nauðsynlegt iðgjald til að ná jafnvægi milli eignaliða og skuldbindinga (vegna iðgjaldsins, þ.e. ekki á að laga stöðu vegna áunninna réttinda með iðgjaldinu) í:
a. B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins af þeim launum sem þar eru tryggð, þ.e. dagvinnulaunum,
b. A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins af þeim launum sem þar eru tryggð, þ.e. heildarlaunum,
c. lífeyrisdeild alþingismanna af þeim launum sem þar eru tryggð, þ.e. þingfararkaupi,
d. lífeyrisdeild ráðherra af þeim launum sem þar eru tryggð, þ.e. ráðherralaunum,
e. Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga af þeim launum sem þar eru tryggð, þ.e. dagvinnulaunum?
2. Hvað mætti varanlega hækka laun sjóðfélaga í framangreindum sjóðum, hverjum fyrir sig, ef sjóðfélagar nytu almennra lífeyriskjara, þ.e. 10% iðgjalds, og launagreiðendur hvorki töpuðu né græddu á breytingunni?
3. Hvernig breytist svarið við 1. og 2. tölul. ef forsenda um ávöxtun breytist úr 3,5% í 3,0% eða 2,5%?
4. Hvaða áhrif hefði breyting forsendu um ávöxtun í 3. tölul. á stöðu almennu sjóðanna, þ.e. hvað þyrfti að jafnaði að skerða lífeyri þeirra mikið að óbreyttu 10% iðgjaldi?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.
1. og 2. tölul. þessarar fyrirspurnar voru bornir fram á síðasta þingi (673. mál). Í svari ráðherra kom fram að ekki lægju fyrir nægilegir útreikningar til að svara fyrirspurninni á viðhlítandi hátt en að þeir mundu liggja fyrir á haustdögum. Því er fyrirspurninni nú aftur beint til ráðherra.
3. og 4. tölul. eru settir fram af því tilefni að langtímaávöxtun hefur nú lækkað um 1% á rúmu ári og um 1,5% á tveimur árum og er nú um 4%. Reiknigrunnur lífeyrissjóðanna miðast við 3,5% ávöxtun og ef ávöxtun lækkar niður fyrir það mark þarf að skerða lífeyri hjá almennu lífeyrissjóðunum eða hækka iðgjald, en iðgjald ríkissjóðs til LSR hækkar sjálfkrafa.