Ferill 166. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 168  —  166. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um smábátaútgerð.

Frá Gísla S. Einarssyni.



     1.      Hve margir einstaklingar byggja afkomu sína á rekstri smábátaútgerðar á Íslandi miðað við 15 smálesta báta og minni?
     2.      Hver var afli báta minni en 15 smálestir sl. þrjú fiskveiðiár?
     3.      Hvert var verðmæti þessa afla sl. þrjú fiskveiðiár?
     4.      Hvert var útflutningsverðmæti þessa afla sl. þrjú fiskveiðiár?
     5.      Hversu hátt hlutfall af aflaverðmæti þessara báta fer í kostnað?
     6.      Hversu mikil olíunotkun er áætluð við veiðar á hverju tonni hjá þessum bátum?
     7.      Hversu hátt hlutfall afla báta undir 15 smálestum er tekið á kyrrstæð veiðarfæri?


Skriflegt svar óskast.