Ferill 167. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 169 — 167. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um aðstoð við smábátaútgerð.
Frá Gísla S. Einarssyni.
1. Hyggst ráðuneytið kanna hvaða áhrif það mun hafa á afkomu þeirra fjölmörgu byggðarlaga sem hafa beinlínis þrifist á útgerð dagabáta ef ekkert verður að gert, í ljósi þess t.d. að þriðji hver þorskur sem landað var á Vestfjörðum síðasta sumar var úr smábátum?
2. Hvort telur ráðherra vænlegra að hverfa til fyrri aðferða með svokallaðri „Vestfjarðaaðstoð“ í formi hundruða milljóna króna beinna styrkja úr ríkissjóði eða gera þessum bátum kleift að vera byggðarlögunum sú lyftistöng sem þeir hafa verið?
Skriflegt svar óskast.