Ferill 179. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 191  —  179. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um bætt starfsumhverfi fyrir kvennahreyfinguna á Íslandi.

Flm.: Kristín Halldórsdóttir, Guðný Guðbjörnsdóttir.



    Alþingi ályktar að fela félagsmálaráðherra að láta gera áætlun um bætt starfsumhverfi kvennahreyfingarinnar og annarra hópa sem vinna að jafnari stöðu kynjanna á Íslandi. Í því skyni verði gert ráð fyrir fjárveitingu samkvæmt fjárlögum til þess að styrkja kvennapólitískt starf hér á landi og til þátttöku í alþjóðlegu kvennapólitísku starfi. Einnig verði tryggðar greiðar boðleiðir á milli félaga og hópa annars vegar og stjórnvalda hins vegar með sam­starfs- og upplýsingafundum um innlent og alþjóðlegt starf sem beinist að því að jafna stöðu kynjanna.

Greinargerð.


    Starfsemi frjálsra félagasamtaka er einn af hornsteinum lýðræðisins. Þau starfa oft í beinum tengslum við grasrótina og eru í mun betri aðstöðu en stjórnvöld til þess að bregðast vafningalaust við nýjum aðstæðum og skilgreina þarfir og skoðanir hins almenna borgara. Þau koma á framfæri sjónarmiðum og ábendingum sem koma stjórnvöldum að gagni og verka þannig sem mótvægi við stjórnkerfi sem oft er þungt og seinvirkt.
    Á alþjóðavettvangi hefur á undanförnum árum skapast aukinn skilningur á mikilvægi frjálsra félagasamtaka og hlutverki kvennahreyfingarinnar. Innan Evrópuráðsins, Evrópu-sambandsins og Sameinuðu þjóðanna hefur aukinn skilningur haft í för með sér bætt starfsskilyrði sem hafa leitt til þess að starfsemi kvennahreyfingarinnar hefur eflst. Skemmst er þess að minnast að Evrópusambandið hefur ákveðið að veita fé að jafngildi tveggja milljarða íslenskra króna til frjálsra félagasamtaka sem vinna gegn ofbeldi á konum og börnum. Ástæðan er sú að sögn Anitu Gradin, sem m.a. fer með dómsmál hjá ESB, að „félagasamtök beiti árangursríkari aðferðum en hið opinbera til að ná til almennings og til þeirra sem eru í áhættuhópum.“
    Þetta hlutverk félagasamtaka þarf einnig að meta að verðleikum hér á landi og skapa svig­rúm fyrir nýja hópa með nýjar hugmyndir. Sérstaklega þarf að huga að og veita brautargengi góðum hugmyndum sem gætu haft keðjuverkandi áhrif í þá átt að leiðrétta kynjamisrétti á Íslandi, jafnvel þótt hugmyndirnar komi frá litlum og lítt skilgreindum hópum eða ein­staklingum.
     Að vissu marki koma íslensk stjórnvöld til móts við rótgróin félagasamtök eins og ungmennahreyfinguna, íþróttahreyfinguna, skáta og fleiri samtök með hefðbundið skipulag og uppbyggingu, en á meðal félagasamtaka hefur kvennahreyfingin mikla sérstöðu. Það er eðli hreyfingarinnar að innan hennar hafa oft myndast litlir óformlegir hópar sem ekki hafa neinar félagaskrár og finnast hvergi á skrám yfir formleg félagasamtök. Þessir hópar hafa brugðist skjótt við nýjum aðstæðum og hafa starfað að afmörkuðum verkefnum í stuttan tíma. Þannig stigu samtök um kvennaathvarf, kvennaráðgjöf, Stígamót o.fl. sín fyrstu skref, en einnig má nefna t.d. konur gegn klámi, áhugahóp um aðgerðir til að koma í veg fyrir ótímabærar þung­anir unglingsstúlkna o.fl.
    Sem dæmi um nýja kvennapólitíska hópa sem eru starfandi hér á landi mætti nefna Bríeti, öflugan hóp ungra kvenna sem hafa mikinn áhuga á femínisma og eru um þessar mundir að vinna að gerð útvarpsþátta um jafnréttismál. Kynjaverur nefnast ný „jafnréttindasamtök“ ungs fólks sem sjálft vill skoða og skilgreina kynjabaráttuna. Kvennakirkjan nýtur æ meiri vinsælda og ekki er vanþörf á að hlúa að kvenfrelsisstarfi innan íslenskrar kirkju. Samstaða gegn kynferðisofbeldi kallast nýstofnuð samtök sem vonandi eiga eftir að láta að sér kveða í framtíðinni. Lífslíkur og árangur þessara hópa mundu aukast til mikilla muna ef hægt væri að sækja um fjárveitingar til þess að koma í verk einhverjum af þeim hugmyndum sem fé­lagsfólk hefur. Þessum hópum og einstaklingum þyrfti að gefa tækifæri til þess að sækja um styrki til pólitískra verkefna, svo fremi að þau geti rökstutt þörfina og sýnt fram á almennt gildi starfsins fyrir samfélagið.
    Aukið samstarf á alþjóðavettvangi snertir jafnt kvennapólitískt starf og aðra þætti sam­félagsins. Reynslan hefur sýnt að á Íslandi er mikill áhugi á þátttöku í alþjóðlegu kvenna­pólitísku starfi eins og sést á þátttöku íslenskra kvenna í Nordisk forum, Peking-ráðstefnunni og ráðstefnu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Valmiera í ágúst 1997. Íslensk stjórn­völd studdu ferðir íslenskra kvenna á ráðstefnurnar og tryggði sá stuðningur mikla þátttöku og virkni fyrir og meðan á ráðstefnunum stóð. En ráðstefnuferðir eru lítils virði ef ekki eru tök á að fylgja þeim eftir. Á þessum ráðstefnum mynduðu Íslendingar tengsl sem erfitt reynd­ist að rækta áfram vegna fjárskorts.
    Hugmyndin að þessari tillögu til þingsályktunar kemur frá norskri stjórnsýslu. Í Noregi hefur barna- og fjölskyldumálaráðuneyti árlega auglýst styrki til kvennapólitískrar upplýs­ingastarfsemi og einnig styrki til kvennapólitísks alþjóðastarfs. Styrkirnir hafa tryggt þann jarðveg sem nauðsynlegur er fyrir frjótt starf. Þar í landi er farvegur fyrir samráð og gagnkvæmt upplýsingaflæði á milli stjórnvalda og kvennahreyfingarinnar. Þar er hefð fyrir því í utanríkisráðuneyti að drög að samningum og hugmyndir sem snerta konur á alþjóðavett­vangi eru send út til umsagnar og upplýsinga- og samráðsfundir eru haldnir í ráðuneytinu þegar þurfa þykir. Í norska barna- og fjölskyldumálaráðuneytinu er tæpra tveggja áratuga hefð fyrir samráðsfundum og gagnkvæmu upplýsingaflæði á milli ráðuneytis, stofnana, frjálsra félagasamtaka og baráttuhópa sem getur komið að góðu gagni fyrir alla aðila.
    
Á sama hátt þyrftu íslensk stjórnvöld að bera hugmyndir sínar undir félagasamtök þegar um er að ræða ákvarðanir sem varða áhuga- og baráttumál þeirra. Það ætti að vera fengur í því fyrir íslenska stjórnsýslu að nýta reynslu og þekkingu sem safnast hafa saman innan kvennahreyfingarinnar. Í mörgum tilvikum er um sérfræðikunnáttu að ræða sem nauðsynlegt er fyrir opinbera aðila að hafa aðgang að. Einnig ætti að kappkosta að kynna kvennahreyf­ingunni hugmyndir og fyrirætlanir sem opinberir aðilar vinna að og hafa um þær samráð.
    Ef lögð er rækt við að fanga góðar hugmyndir eins og lýst er að hér að framan má skapa umhverfið sem þarf til þess að kvennahreyfing og stjórnvöld í sameiningu geti í raun jafnað stöðu kynjanna.