Ferill 127. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 274 — 127. mál.
Svar
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur um skipaðan talsmann í barnaverndarmálum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu oft hefur barni verið skipaður talsmaður til að gæta hagsmuna þess við úrlausn barnaverndarmála á grundvelli laga um vernd barna og ungmenna, nr. 58/1992, frá gildistöku þeirra til 1. október 1998, sbr.
a. 2. mgr. 22. gr.,
b. 1. mgr. 23. gr., og
c. 3. mgr. 46. gr.?
Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Hvaða upplýsingar liggja fyrir um skipan talsmanns fyrir börn?
Til að svara fyrirspurninni reynir á þær upplýsingar sem til eru um starf barnaverndarnefnda landsins. Ákvæði um skipan talsmanns var ekki að finna í þeim lögum sem giltu fram til ársins 1992 á sviði barnaverndar. Nefndunum var ekki gert að svara því í ársskýrslum til ársins 1996 hvort eða hve mörgum börnum hafi verið skipaður talsmaður á þeirra vegum. Upplýsingar frá þessum árum liggja því hvergi fyrir á einum stað. Ársskýrslur stofnana barnaverndarnefnda (félagsmálastofnana) veita að því er séð verður engar upplýsingar í þessu efni heldur.
Árið 1996 var allri upplýsingasöfnun frá barnaverndarnefndum breytt til muna af hálfu Barnaverndarstofu. Frá og með þeim tíma liggja fyrir upplýsingar um skipan talsmanna fyrir börn og hægt að veita svar án fyrirvara.
Barnaverndarstofa sá ástæðu til að kanna umfang þess að börnum væri skipaður talsmaður frá gildistöku lagaákvæða þar um. Nefndirnar höfðu frest til 1. nóvember að svara. Einungis helmingur nefndanna hafði svarað erindinu þegar fresturinn rann út. Ein orsök þess er án efa sú að mikil breyting hefur verið gerð á skipan nefndanna, þar á meðal eftir síðustu kosningar. Þetta hefur haft í för með sér að erfitt er að fá fram áreiðanlegar og tæmandi upplýsingar um störf nefndanna aftur í tímann, jafnvel þó svo að um fáein ár sé að ræða. Svarið nær því einvörðungu til áranna 1996 og 1997.
Upplýsingar frá árunum 1996 og 1997 um skipan talsmanns.
Árið 1996 var einu barni skipaður talsmaður á grundvelli 2. mgr. 22. gr. laga nr. 58/1992, um vernd barna og ungmenna (barnaverndarlaga), sjö börnum á grundvelli 23. gr. laganna og tveimur á grundvelli 3. mgr. 46. gr., alls tíu börnum það ár.
Árið 1997 var níu börnum skipaður talsmaður á grundvelli 2. mgr. 22. gr. barnaverndarlaga, fimm á grundvelli 23. gr. og fimm á grundvelli 3. mgr. 46. gr., eða alls nítján börnum það ár.
Þannig liggur fyrir að árin 1996 og 1997 hefur alls 29 börnum verið skipaður talsmaður á grundvelli barnaverndarlaga.
Ákvæði um talsmenn í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.
Í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sem Íslendingar staðfestu árið 1992 voru innleidd ákvæði sem lúta að tjáningafrelsi barna, svo sem í þjóðfélagslegri umræðu, um velferðar- og hagsmunamál sín o.s.frv., en ekki síst um mál sem varða barn beint, svo sem fyrir dómstólum eða stjórnvaldi. Þessi ákvæði er að finna í 2. lið í 9. gr. samningsins, sem og 1. og 2. lið 12. gr. Telja má framsýni að við undirbúning laga um vernd barna og ungmenna hér skyldi séð fyrir því að ákvæði um skipan talsmanns skyldu lögleidd áður en samningur Sameinuðu þjóðanna hafði hlotið staðfestingu. Í Noregi hafði löngum tíma verið varið til að undirbúa ný barnaverndarlög sem tóku gildi þar í landi árið 1992, en við þá vinnu fórst fyrir að fella inn ákvæði um skipan talsmanns fyrir börn. Gera varð breytingu á norsku lögunum ári síðar af þessum sökum.
Skipan talsmanns samkvæmt öðrum lögum.
Skipan talsmanns fyrir börn getur farið fram samkvæmt öðrum lögum en barnaverndarlögum. Ákvæði þar að lútandi er að finna í barnalögum, nr. 20/1992, með síðari breytingum, sbr. 4. mgr. 34. gr. þeirra laga og 3. mgr. 75. gr., en fyrirspurnin lýtur ekki að þessu atriði. Ekki hefur verið kannað svo vitað sé hve oft ákvæðum um skipan talsmanns hefur verið beitt samkvæmt þeim lögum.
Tilefni að skipan talsmanns samkvæmt barnaverndarlögum; lagaskilyrði.
Lagaákvæði um skipan talsmanns eru allítarleg og sértæk í barnaverndarlögum. Ákvæðin koma fyrir á þremur stöðum og eiga við um ólíkar aðstæður.
Fyrst kemur til álita 22. gr. laganna en þar er um að ræða að barn er vistað gegn vilja sínum á viðeigandi stofnun. Ástæða slíkrar vistunar er oftast sú að barn er talið stefna heilsu sinni og þroska í hættu með hegðun sinni, svo sem með neyslu áfengis, fíkniefna, afbrotum eða annarri jafnskaðlegri hegðun. Samkvæmt heimild laganna er unnt að vista barn í allt að fjórar vikur í senn á viðeigandi stofnun af þessum sökum. Í lagagreininni skiptir aldur barnsins máli og segir þar að hafi barnið náð tólf ára aldri skuli það fá að tala máli sínu fyrir barnaverndarnefnd með liðsinni sérstaks talsmanns ef því er að skipta.
Í öðru lagi er skilyrði til þess að skipa barni talsmann að barn hafi orðið fyrir ofbeldi eða áreitni eða óskilgreindum afbrotum og yfir standi rannsókn í slíku máli, sbr. 23. gr. laganna.
Í þriðja lagi kemur heimildin fyrir í 46. gr. laganna þar sem kveðið er á um meðferð úrskurðarmála, sbr. VIII. kafla. Tilefni slíks úrskurðar getur verið mismunandi, þ.e. eigin hegðun barns, sbr. 22. gr., eða að uppeldisaðstæðum barns sé ábótavant vegna háttsemi forsjármanna. Samkvæmt lagagreininni er skylt, hvert sem tilefni úrskurðarins er, að gefa barni sem náð hefur tólf ára aldri tækifæri til að tjá sig um mál. Í lögunum segir: „Þegar sérstaklega stendur á er barnaverndarnefnd heimilt að skipa barni eða ungmenni sérstakan talsmann.“
Núgildandi lagaákvæði þykja því nokkuð takmarkandi. Í stjórnarfrumvarpi sem lagt hefur verið fyrir 123. löggjafarþing, frumvarp um breytingu á lögum um vernd barna og ungmenna nr. 58/1992, sbr. lög nr. 22/1995, er gert ráð fyrir að ný grein bætist við lögin og felur hún í sér rýmkun á heimild til að skipa barni talsmann. Um er að ræða greinilegan áherslumun frá núgildandi lögum þannig að lagt er að jöfnu hvort mál er til úrlausnar „með úrskurði“ eða „bókun“. Með öðrum orðum er ekki gerður greinarmunur á formi ákvörðunarinnar.
Til samanburðar er ákvæði í 2. mgr. greinar 7–4 í norsku barnaverndarlögunum (nr. 100 frá 11. júlí 1993, om barnevernstjenster). Þetta er eina ákvæðið í lögum um barnavernd í Noregi um skipan talsmanns fyrir börn að því er best verður séð. Sýnilegt er að skipunin kemur helst til álita þegar leggja skal mál til úrskurðar fyrir fylkisnefnd í Noregi, en sú nefnd fjallar einvörðungu um þvingandi ráðstafanir. Ákvæði íslensku laganna hljóta í þessum samanburði að teljast mun ítarlegri, bæði núgildandi ákvæði og enn frekar þau sem verið er að ná fram með nýja frumvarpinu sem áður var getið og Alþingi fjallar nú um. Samanburður á lögum landanna er þó varasamur þar sem skilgreiningar um „aðild“ barns að máli, aldur barns og á því sem telst „þvingun“ eru ekki sambærilegar að öllu leyti.
Er skipan talsmanns oft beitt?
Skipan talsmanns fyrir börn var fyrst möguleg með lögum sem tóku gildi 1. janúar 1993. Búast má við því að úrræðið hafi smám saman verið að festast í sessi. Árin 1996 og 1997 var eins og áður segir tuttugu og níu börnum skipaður talsmaður, tíu fyrra árið og nítján það síðara. Rökstyðja má að erfitt sé að henda reiður á því út frá þessari staðreynd einni hvort hér sé um „algengt“ úrræði að ræða eða ekki.
Ljóst er að við fáa ef nokkra mælikvarða er að styðjast. Tæpast er unnt að gera mikið meira en grípa til einhvers konar „innri samanburðar“, svo sem með því að skoða hvaða þróun hefur orðið á milli ára. Slíkar upplýsingar geta þrátt fyrir allt gefið vísbendingu um breyttar áherslur í starfi barnaverndarnefnda, breytta afstöðu til barna og persónulegra réttinda þeirra, allt eftir því hvernig slíkt er túlkað. Þá er mögulegt að leita samanburðar við úrlausnir barnaverndarnefnda, þ.e. hve oft er um úrræði að tefla sem gætu gefið tilefni til þess að skipa talsmann. Þessi samanburður er allt að því nauðsynlegur til að unnt sé að sjá hvort úrræðinu er oft beitt.
Fram til ársins 1996 kemur ekki fram í ársskýrslum barnaverndarnefnda á hvaða lagagrundvelli úrræðum barnaverndarnefnda var almennt beitt. Þess vegna er útilokað að gera samanburð á þessu atriði. Á hinn bóginn gefa upplýsingar sem aflað er frá nefndunum eftir þennan tíma færi á þessu. Úrvinnslu upplýsinga ársins 1997 er ekki lokið og verður því að nægja að styðjast við upplýsingar frá árinu 1996.
Samkvæmt upplýsingum nefndanna voru 78 börn vistuð utan heimilis síns á grundvelli 22. gr. barnaverndarlaga árið 1996, svo sem til meðferðar eða rannsóknar á stofnun, í neyðarvistun o.s.frv. Gefur þetta vísbendingu um það ýtrasta tilefni sem gæti hafa verið til að skipa barni talsmann á grundvelli þessarar lagagreinar þetta ár. Af skýrslum nefndanna að dæma var hins vegar aðeins einu barni skipaður talsmaður á grundvelli lagaákvæðisins.
Í gögnum barnaverndarnefnda kemur jafnframt fram að á árinu 1996 var 92 börnum veitt ráðgjöf á grundvelli 23. barnaverndarlaga. Þá kemur fram að „persónulegur ráðgjafi“ hafi verið skipaður 156 börnum. Vera má að skipan slíks ráðgjafa sé í einhverjum tilvikum álitin ígildi talsmanns.
Um tilefni á grundvelli 46. gr. barnaverndarlaga gegnir öðru máli í samanburði, enda eru aðstæður afar mismunandi, svo sem úrskurður um „eftirlit með heimili“, sbr. a-lið 24. gr. (88 börn), úrskurðir um „umgengni fósturbarna við kynforeldra og nákomna“, sbr. 3. mgr. 33. gr. (sex börn), úrskurður um að „barn skyldi kyrrt í fóstri“, sbr. 35. gr. (23 börn), og „forsjármenn sviptir forsjá barns til frambúðar“, sbr. 25. gr. (fimm börn).
Í ársskýrslum barnaverndarnefnda segir að úrskurðir hafi verið kveðnir upp vegna mála 157 barna. Tveimur börnum var skipaður talsmaður á þessum grundvelli árið 1996. Benda má á að margir úrskurðir snúa að börnum sem eru í fóstri og í þeim tilvikum koma fósturforeldrar barna oft til sögunnar við að gæta hagsmuna þeirra við meðferð máls fyrir barnaverndarnefnd.
Talað máli barns.
Eftir þessum tölum að dæma er varla blöðum um það að fletta að börnum er sjaldan skipaður talsmaður. Ástæða þess kann að vera sú að barnaverndarnefndirnar telji sig í raun talsmenn þeirra barna sem í hlut eiga. Verkaskipting sem leiðir af heimildum í 3. mgr. 7. gr. barnaverndarlaga, þar sem barnaverndarnefnd getur falið starfsmönnum sínum að sinna tilteknum verkefnum, könnun mála og meðferð, getur hugsanlega ýtt undir þann skilning að búið sé að rjúfa samband milli ákvörðunar í máli barns og meðferðar málsins að öðru leyti. Þetta gæti verið þannig í framkvæmd að starfsmaðurinn sé álitinn koma fram fyrir nefndinni sem hagsmunagæslumaður barnsins sem hafi kynnt sér rækilega vilja þess og hagsmuni. Nefndin vegi þau rök sem fram koma og viðkomandi starfsmaður láti í ljós skoðanir sínar við nefndina. Aukinheldur er að því að gæta þegar alvarlegri ákvarðanir barnaverndarnefnda eru annars vegar liggur fyrir álit og mat fjölmargra aðila sem til aðstæðna þekkja.
Margir fagmenn líta svo á að sú hætta skapist við skipan talsmanns að síður verði leitað álits barna beint og milliliðalaust af hálfu barnaverndarnefndar, líkt og lög gera ráð fyrir. Telja þeir að ekki sé tryggt að sérskipaður talsmaður komi skoðunum barns skýrar og betur á framfæri en þegar er gert á vettvangi barnaverndarnefndanna.
Sá skilningur virðist ríkjandi að fyrst og fremst beri að tryggja börnum „lagaleg réttindi“ með skipun talsmanns, þ.e. löglærðan réttargæslumann. Aðalatriðið ætti hins vegar að vera að hugað sé að framtíðarvelferð barnsins, þ.e. að tilfinningaleg, sálræn og félagsleg velferð barnsins sé höfð í fyrirrúmi við skipun talsmanns og alla málsmeðferð.
Reglur um skipan talsmanns.
Skipan talsmanns fyrir börn er nýmæli í hérlendri löggjöf. Þau fáu ár sem liðin eru frá gildistöku laga um skipan talsmanns hefur komið í ljós að margir telja að leiðbeinandi reglur skorti með lögunum eða jafnvel bindandi lagafyrirmæli til að auðvelda framkvæmdina og þar komi sá skilningur fram sem að framan greinir.