Ferill 248. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 280  —  248. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Flm.: Einar K. Guðfinnsson, Guðjón Guðmundsson.



1. gr.

    Á eftir 6. mgr. 5. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Skilyrði þess að veiðileyfi sé flutt til annars skips er að eigandi skips, sem veiðileyfi læt­ur, hafi skriflega óskað eftir því að veiðileyfi sé flutt til skips sem er á skipaskrá hjá Sigl­ingastofnun Íslands og hefur gilt haffærisskírteini. Þó skal heimilt að flytja veiðileyfi yfir á skip í smíðum þegar það hefur fengið skipaskrárnúmer hjá Siglingastofnun Íslands.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Með frumvarpi þessu er lagt til að kveðið verði skýrt á um það hvaða skilyrðum þau skip sem veiðileyfi eru flutt til þurfa að fullnægja, þ.e. að þau séu á skipaskrá og hafi gilt haf­færisskírteini. Jafnframt er lagt til að gerð verði undantekning frá þessari meginreglu varð­andi skip sem eru í smíðum þannig að hægt sé að flytja veiðileyfi og aflahlutdeild til þeirra um leið og þau hafa fengið skipaskrárnúmer hjá Siglingastofnun Íslands.
    Þær reglur sem gilda um flutning veiðileyfa á milli skipa geta skapað vandamál fyrir út­gerðir sem eru að endurnýja skipakost sinn með því að láta smíða ný skip sem komi í stað eldri skipa. Í sumum tilvikum er staðan sú að útgerð þarf að selja frá sér skip eða úrelda og selja úr landi meðan á smíði nýja skipsins stendur og áður en það getur hlotið haffærisskír­teini. Við slíkar aðstæður getur útgerð þurft að láta geyma veiðileyfi sitt á öðru skipi, e.t.v. í eigu óskyldra aðila, þar til nýja skipið fær haffærisskírteini. Í ljósi þess hversu íþyngjandi það getur verið fyrir útgerðir að fá veiðileyfi geymt tímabundið verður að telja eðlilegt að þeim sé gefinn kostur á því að flytja veiðileyfi og aflahlutdeild yfir á nýtt skip um leið og það hefur fengið skipaskrárnúmer hjá Siglingastofnun Íslands. Þar að auki má það teljast eðli­legra að veiðileyfið og aflahlutdeildin séu flutt beint yfir á það skip sem ætlunin er að nýti þau réttindi sem veiðileyfið og aflahlutdeildin skapar.
    Eins og sjá má af frumvarpsgreininni er ljóst að ekki er verið að leggja til neinar grund­vallarbreytingar á skilyrðum þess að skip fái veiðileyfi. Einungis er verið að opna fyrir und­antekningarákvæði til þess að afstýra vandræðum þegar sérstaklega stendur á.
    Þær lagabreytingar voru gerðar fyrr á þessu ári að veiðiskylda skipa var aukin. Það leiðir af eðli máls að þau ákvæði munu að sjálfsögðu gilda um þau skip sem frumvarpið kveður á um, líkt og um önnur skip. Þar með er ljóst að ekki er hætta á að menn reyni að misnota laga­ákvæði af þessu tagi, enda féllu veiðileyfi og aflahlutdeild niður ef lagaákvæði um veiði­skylduna yrði ekki uppfyllt.