Ferill 255. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 292  —  255. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um uppbyggðan veg yfir Kjöl.

Flm.:     Guðni Ágústsson, Hjálmar Jónsson.



    Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að láta Vegagerðina gera athugun á vegstæði, kostnaði og þýðingu þess fyrir byggðaþróun og umferð milli landshluta að gera uppbyggðan veg með slitlagi um Kjöl.

Greinargerð.


    Engin ein framkvæmd í samgöngumálum hefur jafnbyltingarkennd áhrif á samgöngur og mannlíf í landinu og Hvalfjarðargöng. Allar vegalengdir frá Norður- og Vesturlandi til Reykjavíkur hafa styst sem nemur klukkustundarakstri og erfiður vetrarvegur um Hvalfjörð er úr leik.
    Eðlilegt er að spurt sé hvort einhverjar aðrar samgöngubætur geti valdið álíka byltingu og um leið styrkt byggðir og mannlíf.
    Til forna völdu forfeður okkar miðhálendið sem ferðaleið á milli fjórðunga, það var hag­kvæmast. Hvaða áhrif hefði uppbyggður og breiður vegur með slitlagi yfir Kjöl á mannlíf á Suður- og Norðurlandi? Mundi slíkur vegur hafa álíka áhrif og Hvalfjarðargöng?
    Frá Gullfossi að Blönduvirkjun eru um 156 km, þar af er nú þegar rúmlega 60 km upp­byggður vegur. Leiðin milli byggða yrði innan við 200 km, 168 km frá Geysi að Blöndu­virkjun og um 180 km frá Geysi að Svínvetningabraut.
    Vegalengdir milli Selfoss og staða norðanlands eru eftirfarandi, vegalengdir um hringveg sýndar til samanburðar:
Um Kjöl, Blöndudal
og Vatnsskarð

Um hringveg
Selfoss–Varmahlíð 268 km 338 km
Selfoss–Sauðárkrókur 294 km 362 km
Selfoss–Akureyri 363 km 432 km

    Kanna þarf ýmsar áhugaverðar tengingar út frá núverandi Kjalvegi sem mundu stytta verulega allar leiðir norður og austur um, t.d. um Blöndustíflu og niður Mælifellsdal eða Gil­hagadal í Skagafirði. Síðan má hugsa sér að Héraðsvötn verði brúuð í sambandi við virkjun­arframkvæmdir við Villinganes í Skagafirði. Trúlega yrði Kjölur torfarinn yfir háveturinn en ekki endilega verri en margir aðrir fjallvegir í landinu. Ný tækni býður upp á allt aðrar upplýsingar á veðurfari ferðamönnum til glöggvunar en áður var.
    Í huga flutningsmanna er uppbyggður vegur yfir Kjöl heillandi verkefni sem á að taka til skoðunar sem fyrst. Ætla má að þessi vegagerð mundi kosta innan við einn milljarð króna. Byggðaáhrifin yrðu nýtt ævintýri og hagræðing mikil fyrir landsmenn alla.


Prentað upp.