Ferill 256. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 294  —  256. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um niðurfellingu virðisaukaskatts af innlendri handverksframleiðslu.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Hefur komið til skoðunar að fella niður virðisaukaskatt af framleiðslu handverksfólks, svo sem minjagripum og munum, sem ber slíkan skatt nú?
     2.      Hvaða aðgerðir aðrar telur ráðuneytið mögulegar til að gera alla sem framleiða slíkar vörur jafnsetta við skattlagningu óháð því hvort þeir stunda aðra virðisaukaskattsskylda starfsemi?