Ferill 258. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 296  —  258. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um fráveitumál sveitarfélaga.

Frá Ragnari Arnalds.



     1.      Hver er áætlaður kostnaður sveitarfélaga af framkvæmdum við fráveitur sem notið geta styrks úr ríkissjóði samkvæmt lögum nr. 53/1995, um stuðning við framkvæmdir sveitar­félaga í fráveitumálum, sundurgreindur eftir sveitarfélögum og samanlagður?
     2.      Hvert yrði framlag ríkissjóðs til þessara framkvæmda?
     3.      Er ekki ólíklegt að sveitarfélögin geti staðið straum af þessum framkvæmdum miðað við óbreytta kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga?
     4.      Hve miklar tekjur má ætla að ríkissjóður hefði af þessum framkvæmdum í formi virðisaukaskatts og annarra skatta?
     5.      Er ekki ástæða til að lög nr. 53/1995 verði endurskoðuð með það að markmiði að auka kostnaðarhlutdeild ríkisins og að framkvæmdatími verði lengdur?