Ferill 69. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 335 — 69. mál.
Svar
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur um íbúð Búnaðarbankans í Lundúnum.
Svarið er byggt á upplýsingum frá Búnaðarbanka Íslands hf., Löggiltum endurskoðendum hf., sem fara með endurskoðun Búnaðarbanka Íslands hf. í umboði ríkisendurskoðanda, og frá ríkisendurskoðanda, en hann fór einnig með endurskoðun á ríkisviðskiptabankanum.
1. Hversu margir hafa fengið afnot af íbúð Búnaðarbankans í Lundúnum frá því að hún var tekin á leigu?
Samkvæmt upplýsingum Búnaðarbanka Íslands hf. var íbúð í Lundúnum fyrst tekin á leigu skömmu eftir að bankinn öðlaðist réttindi til viðskipta með erlendan gjaldeyri, enda var talin þörf á því á þeim tíma. Stjórnendur og aðrir starfsmenn bankans nýttu slíka íbúð í tengslum við umfangsmikil samskipti bankans við erlenda banka með aðsetur í Lundúnum og vegna námskeiða sem starfsfólk sótti þar. Þegar íbúðin var ekki nýtt á þennan hátt var sömu aðilum heimilað að gista í henni. Einnig höfðu stjórnendur hlutdeildarfélaga bankans afnot af íbúðinni þegar þeir áttu erindi til Lundúna og íbúðin var laus. Þá eru þess dæmi að íbúðin hafi verið nýtt í opinbera þágu.
Einnig kemur fram að skrifstofa bankastjórnar hafi haft umsjón með ráðstöfun leiguíbúðarinnar á hverjum tíma og hafi minnispunktar um komu- og brottfarardaga einstakra notenda verið handfærðir í minnisbók fyrir viðkomandi ár. Ekki hafi þó verið skráð full nöfn, enda sé um að ræða minnispunkta en ekki formlegar skrár.
Samkvæmt upplýsingunum eru nú í vörslu bankans minnisbækur fyrir árin 1996 og 1997, en öðrum minnisbókum hefur verið fargað. Þá hefur komið fram að til sé tölvuskrá um þá sem gistu í íbúðinni árin 1994 og 1995. Sú skrá var byggð á minnisbókum þessara ára, en samkvæmt upplýsingum endurskoðanda bankans liggur ekki fyrir að skráin hafi verið yfirfarin eða staðfest.
Rétt er að taka fram að bankinn hefur staðfest sérstaklega að engar gestabækur úr íbúðinni séu til í fórum bankans.
Samkvæmt framangreindu liggja ekki fyrir upplýsingar um hversu margir hafi fengið afnot af íbúð bankans í Lundúnum frá því að hún var tekin á leigu.
2. Hversu margir þeirra voru:
a. almennir starfsmenn bankans,
b. yfirmenn í bankanum aðrir en bankastjórar,
c. bankastjórar,
d. bankaráðsmenn,
e. ráðherrar,
f. alþingismenn,
g. ættingjar starfsmanna,
h. ættingjar bankastjóra,
i. ættingjar bankaráðsmanna,
j. aðrir?
Eins og áður sagði liggja ekki fyrir upplýsingar um afnot af íbúðinni, að öðru leyti en því að til eru minnisbækur frá árunum 1996 og 1997 og tölvuskrá um þá sem gistu í íbúðinni árin 1994 og 1995. Gera verður þann fyrirvara að ekki er hægt að fullyrða að upplýsingar sem fram koma í umræddum minnisbókum eða tölvuskrá séu tæmandi um þá sem höfðu íbúðina til afnota hin tilgreindu ár. Samkvæmt fyrrgreindum upplýsingum hefur Búnaðarbankinn flokkað þá sem höfðu afnot af íbúðinni þannig:
a. Almennir starfsmenn 7
b. Yfirmenn aðrir en bankastjórar 19
c. Bankastjórar 3
d. Bankaráðsmenn 4
e. Aðrir 7
Samtals 40