Ferill 70. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 336  —  70. mál.




Svar



viðskiptaráðherra við fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur um samninga við bankastjóra Búnaðarbanka Íslands.

    Svarið er byggt á upplýsingum frá Búnaðarbanka Íslands hf. Þá hefur ráðuneytið leitað staðfestingar ríkisendurskoðanda á þeim upplýsingum sem fram koma, en hann er og var end­urskoðandi bankans og hafði auk þess með höndum yfirumsjón með lokauppgjöri ríkisvið­skiptabankanna.

     1.      Voru gerðir samningar við starfandi bankastjóra Búnaðarbanka Íslands þegar honum var breytt í hlutafélag?
    Litið er svo á að hér sé átt við hvort sérstakir starfslokasamningar hafi verið gerðir við bankastjóra ríkisviðskiptabankans þegar hann var lagður niður. Samkvæmt upplýsingum Búnaðarbanka Íslands hf. undirritaði hver bankastjóranna, ásamt formanni og varaformanni bankaráðs f.h. Búnaðarbanka Íslands, yfirlýsingu undir fyrirsögninni „starfslokasamningur“ þar sem fram kemur að aðilar séu sammála um að engar kvaðir eða kröfur séu uppi eða muni koma fram að hálfu þessara aðila sem tengjast starfslokum bankastjóra ríkisviðskiptabank­ans. Í starfslokasamningunum er ekki kveðið á um neinar starfslokagreiðslur, hlunninda­greiðslur eða aðrar greiðslur. Hins vegar var samið við bankastjóra um uppgjör áunninna líf­eyrisréttinda sem byggðust á eldri samningum. (Sjá nánar svar við 2. lið.)

     2.      Ef svo var, í hverju voru þeir fólgnir? Var kveðið á um lífeyrismál, starfslokagreiðslur eða hlunnindi í þessum samningum?
    Eins og áður segir var ekki kveðið á um sérstakar starfsloka- eða hlunnindagreiðslur í fyrrgreindum starfslokasamningum. Rétt er hins vegar að taka fram að bankaráð ríkisvið­skiptabankans samdi við bankastjórana um frágang lífeyrisskuldbindinga sem fól í sér rétt þeirra til að flytja 60% réttinda sinna í séreignarsjóð. Bankaráðið hafði raunar áður samið um rétt til handa bankastjórum til að varðveita öll réttindi sín í séreignarsjóði, en ákveðið var að endurskoða þær ákvarðanir, m.a. með hliðsjón af breytingum á reglugerð um Eftir­launasjóð starfsmanna Búnaðarbankans sem þá voru í undirbúningi, en samkvæmt þeim var starfsmönnum ríkisviðskiptabankans boðið að flytja réttindi sín yfir í nýtt kerfi sem fól með­al annars í sér flutning u.þ.b. 40% réttinda yfir í séreignarlífeyrissjóð að eigin vali starfs­manns. Breytingar á reglugerðinni og lokauppgjör ríkisviðskiptabankanna fól einnig í sér að áunnin lífeyrisréttindi allra starfsmanna Búnaðarbanka Íslands voru gerð upp um áramótin síðustu með skuldaviðurkenningum. Sama gilti um bankastjórana.
    Óuppgerðar lífeyrisskuldbindingar allra starfsmanna í lok árs 1997 námu samtals 2.719 millj. kr., en þar af höfðu 1.994 millj. kr. áður verið færðar til skuldar í reikningum bankans. Hækkuðu hinar óuppgerðu skuldbindingar á árinu 1997 um 725 millj. kr. Þar af tengdust 308 millj. kr. uppgjöri milli bankans og starfsmannafélaga vegna svokallaðrar 95 ára reglu sem var til viðbótar við fyrri útreikninga. Það sem eftir stendur er vegna endurmats á reiknuðum lífeyrisréttindum. Hlutur starfandi bankastjóra nam 224 millj. kr. af fyrrgreindum 2.719 millj. kr. og var uppgjör lífeyrisréttinda þeirra aðila grundvallað á ákvæðum gildandi samn­inga milli þeirra og bankaráðs. Þeir samningar voru frá fyrri tíð og tengdust ekki uppgjöri við breytingar á rekstrarformi bankans.

     3.      Hversu mikið munu þessir samningar við bankastjórana kosta bankann á ári?
    Þar sem uppgjör á lífeyrisskuldbindingum allra starfsmanna Búnaðarbanka Íslands fór fram fyrir árslok 1997 leggst enginn kostnaður á Búnaðarbanka Íslands hf. í framtíðinni vegna þess uppgjörs.