Ferill 292. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 346 — 292. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um mat á áhrifum lögfestingar stjórnarfrumvarpa á byggðaþróun.
Flm.: Magnús Stefánsson, Ísólfur Gylfi Pálmason, Kristinn H. Gunnarsson,
Egill Jónsson, Gísli S. Einarsson, Hjálmar Árnason.
Alþingi ályktar að með stjórnarfrumvörpum sem lögð eru fyrir Alþingi fylgi mat á því hvaða áhrif lögfesting kann að hafa á byggðaþróun í landinu.
Greinargerð.
Á undanförnum árum hefur byggðaþróun í landinu verið sú að þúsundir Íslendinga hafa flutt af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins umfram þá sem hafa flutt til landsbyggðarinnar.
Ljóst er að lögfesting einstakra lagafrumvarpa getur haft bein áhrif á byggðaþróun. Sem dæmi má nefna að fjárlög hvers árs eru stefnumótandi um það hvernig nýta á fjármagn ríkissjóðs til ýmissa hluta. Ákvæði fjárlaga um útgjöld í einstökum málaflokkum geta haft einföld og bein áhrif á byggðaþróun, til lengri og skemmri tíma. Þannig geta fjárlög jafnt stuðlað að sterkari stöðu byggðanna úti um landið sem veikt stöðu þeirra. Lögfesting stjórnarfrumvarpa í ýmsum málaflokkum hefur einnig bein áhrif. Því er afar mikilvægt að eins ljóst liggi fyrir og kostur er hvaða áhrif lagasetningin hefur á byggðaþróun, bæði við frumvarpssmíðina og við umfjöllun Alþingis.
Þegar stjórnarfrumvörp eru í smíðum eru þau unnin að frumkvæði viðkomandi ráðuneyta. Oftast koma hagsmunaaðilar að þeirri vinnu, samráð er haft milli pólitískra samherja og í einstaka tilfellum vinna þingmenn að málum. Áður en lokið er við að semja stjórnarfrumvarp gefur fjármálaráðuneytið umsögn um hvaða áhrif lögfesting þess komi til með að hafa á tekjur eða gjöld ríkissjóðs. Á sama hátt hlýtur að vera nauðsynlegt að skoðað verði hvaða áhrif lögfesting frumvarpa getur haft á byggðaþróun í landinu, ekki síst í ljósi þess hve alvarleg og neikvæð byggðaþróunin hefur verið á Íslandi mörg undanfarin ár.
Þegar lagafrumvörp eru samin er mörkuð stefna um það á hverju viðkomandi lög skuli taka. Á því stigi málsins er mikilvægt að þeir sem semja lagafrumvörp geri sér sem besta grein fyrir áhrifum þeirra eftir að þau verða að lögum. Því er nauðsynlegt fyrir framkvæmdarvaldið og stjórnsýsluna að leitast við að gera sér grein fyrir því hvaða áhrif lögfesting lagafrumvarpa kemur til með að hafa á byggðaþróun. Færa má rök fyrir því að hagsmunir íbúa landsbyggðarinnar hafi verið látnir víkja fyrir öðrum hagsmunum. Í því sambandi má nefna fjárhagslega hagsmuni varðandi útgjöld ríkissjóðs sem lúta tölulegum lögmálum en í slíkum tilfellum skortir oft á að hugað sé að heildarhagsmunum þjóðarinnar. Leiða má líkur að því að í slíkum tilfellum hafi áhrif lagasetninga ýtt undir byggðaþróun undanfarinna ára.
Stjórnsýslan og framkvæmdarvaldið hefur að langmestu leyti aðsetur á höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn þess og embættismenn eru langflestir búsettir á því svæði og hafa takmörkuð tengsl og skilning á aðstæðum og hagsmunum annarra Íslendinga sem búa á landsbyggðinni. Þessir aðilar, sem hafa mikið um útfærslu lagafrumvarpa að segja, hafa hagsmuni byggðanna úti um landið eðlilega ekki efst í huga við frumvarpsgerðina eða þegar þeir fjalla um ýmis atriði á sviði framkvæmdarvaldsins. Ekki er fullyrt hér að þetta sé algilt en leiða má líkur að því að svona hafi málum verið háttað.
Þegar leggja á mat á afleiðingar lögfestingar lagafrumvarpa á byggðaþróun í landinu má telja eðlilegt að Byggðastofnun sé falið að vinna slík verkefni. Stofnunin býr yfir alhliða þekkingu á málefnum og hagsmunum landsbyggðarinnar og því væri rökrétt að stofnunin ynni að slíkum verkefnum.