Ferill 293. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 350 — 293. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um Handverk og hönnun, ráðgjafarþjónustu heimilis- og listiðnaðar.
Frá Arnbjörgu Sveinsdóttur.
1. Hvert er eðli verkefnisins Handverk og hönnun sem ráðuneytið hefur staðið fyrir á undanförnum fimm árum?
2. Hvaða árangur hefur orðið af verkefninu?
3. Hvert verður framhald þess?