Ferill 311. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 372 — 311. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997.
Flm.: Bryndís Hlöðversdóttir, Guðmundur Árni Stefánsson, Hjálmar Jónsson.
1. gr.
2. málsl. 36. gr. laganna orðast svo: Ráðningartími héraðspresta skal vera fimm ár í senn.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Með frumvarpi þessu er lagt til að héraðsprestar íslensku þjóðkirkjunnar séu ráðnir til fimm ára í senn til samræmis við það sem gildir um sóknarpresta og presta, sbr. 36. og 40. gr. laga nr. 78/1997, um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar. Ekki verður séð að sérstök rök hnígi til þess að hafa aðrar reglur um héraðspresta, en skv. 2. málsl. 36. gr. laganna er ráðningartími þeirra allt að þremur árum í senn. Á kirkjuþingi árið 1997 var samþykkt að leggja til að ráðningartími héraðspresta væri allt að fimm árum í senn, en hér er lagt til að hann skuli vera fimm ár í senn til samræmis við 2. mgr. 40. gr. laganna.