Ferill 176. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 419  —  176. mál.




Frumvarp til laga



um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda.

(Eftir 2. umr., 7. des.)



I. KAFLI
Heiti, hlutverk, aðild, stjórn og iðgjald.
1. gr.

    Sjóðurinn heitir Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda og starfar með því skipulagi og markmiði sem segir í lögum þessum og samþykktum sjóðsins.
    Heimilt er að skipta sjóðnum í deildir eftir fjárfestingarstefnu, eftir því hvernig ávinnslu réttinda er háttað og eftir því hvort lífeyrisréttindi eru í sameign eða séreign.
    Hlutverk sjóðsins er að tryggja sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum lífeyri samkvæmt ákvæðum laga þessara og samþykkta sjóðsins.
    Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.

2. gr.

    Skylda til greiðslu iðgjalds nær til allra launþega og þeirra sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi frá 16 ára til 70 ára aldurs og hafa ekki fullnægt tryggingarskyldu sinni með aðild að öðrum lífeyrissjóði og greiðslu iðgjalds til hans í samræmi við ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

3. gr.

    Fjármálaráðherra skipar sjö menn og jafnmarga varamenn í stjórn sjóðsins til fjögurra ára í senn. Skulu tveir stjórnarmanna skipaðir eftir tilnefningu stjórnar Sambands almennra líf­eyrissjóða, tveir eftir tilnefningu stjórnar Landssambands lífeyrissjóða, einn eftir tilnefningu Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og tveir án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður sjóðstjórnar en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Fjármálaráðherra ákvarðar þóknun stjórnarmanna. Stjórnin skal halda gerðabók og rita í hana allar samþykktir sínar. Til þess að samþykkt sé lögmæt þarf meiri hluti stjórnarmanna að greiða henni atkvæði.

4. gr.

    Stjórn sjóðsins fer með yfirstjórn hans. Stjórnin skal fjalla um allar meiri háttar ákvarð­anir varðandi stefnumótun sjóðsins og starfsemi. Hún skal sjá um að nægjanlegt eftirlit sé haft með bókhaldi og meðferð fjármuna sjóðsins. Stjórnin setur honum samþykktir í samræmi við ákvæði laga þessara og ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

5. gr.

    Iðgjald til sjóðsins skal nema 10% af iðgjaldsstofni, sbr. 2. mgr. Sé um launþega að ræða skiptist iðgjald þannig að launþegi greiðir 4% en launagreiðandi 6%.
    Iðgjald skv. 1. mgr. skal reiknað af heildarfjárhæð greiddra launa og endurgjalds fyrir hvers konar vinnu, starf og þjónustu. Stofn til iðgjalds skal vera allar tegundir launa eða þóknana fyrir störf sem skattskyld eru skv. 1. mgr. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt. Til gjaldstofns skal þó ekki telja hlunnindi sem greidd eru í fríðu, svo sem fatnað, fæði og húsnæði, eða greiðslur sem ætlaðar eru til endurgreiðslu á út­lögðum kostnaði, t.d. ökutækjastyrki, dagpeninga og fæðispeninga. Enn fremur skal ekki telja til gjaldstofns eftirlaun. Þá skal telja til iðgjaldsstofns atvinnuleysisbætur samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Iðgjaldsstofn manns vegna vinnu hans við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi skal vera jafnhár fjárhæð skv. 2. mgr. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, sbr. 59. gr. þeirra laga.

6. gr.

    Heimilt er að setja ákvæði í samþykktir sjóðsins um að lífeyrissjóðurinn megi taka við viðbótariðgjaldi sem greitt er umfram iðgjald skv. 5. gr. og að viðbótariðgjaldi þessu verði varið til ávinnslu réttinda hjá sjóðnum eftir nánari reglum í samþykktum. Jafnframt er heimilt að kveða á um í samþykktum að hluta iðgjalds skv. 1. mgr. 5. gr. sé varið til öflunar lífeyris­réttinda í séreign.

7. gr.

    Launagreiðanda ber að halda eftir iðgjöldum starfsmanna sinna og standa skil á þeim mánaðarlega ásamt eigin iðgjaldshluta. Gjalddagi iðgjalds hvers mánaðar er 10. næsta mánaðar og eindagi síðasta dag sama mánaðar. Hafi ekki verið greitt á eindaga skal inn­heimta hæstu vanskilavexti sem Seðlabanki Íslands heimilar innlánsstofnunum að taka frá gjalddaga til greiðsludags. Launagreiðanda og sjálfstæðum atvinnurekanda ber að tilkynna sjóðnum ef þeim ber ekki lengur að standa skil á lífeyrisiðgjaldi þar sem þeir hafa hætt starfsemi eða launþegar þeirra látið af störfum.

8. gr.

    Stjórn sjóðsins er heimilt að innheimta þóknun allt að 2% af iðgjaldi vegna innheimtu ið­gjalda sem sjóðnum ber að innheimta í samræmi við 6. gr. laga nr. 129/1997. Heimilt er að draga þóknunina frá iðgjaldi áður en það er fært í réttindabókhald.

II. KAFLI
Lífeyrisréttindi.
9. gr.

    Sjóðurinn greiðir sjóðfélaga eftir því sem við á ellilífeyri og örorkulífeyri og eftirlifandi maka og börnum lífeyri í samræmi við ákvæði þessa kafla og samþykkta sjóðsins.

10. gr.

    Hver sjóðfélagi sem orðinn er fullra 67 ára að aldri á rétt á ellilífeyri úr sjóðnum.
    Heimilt er sjóðfélaga að hefja töku lífeyris áður en hann nær 67 ára aldri, þó ekki fyrr en frá 65 ára aldri. Skal þá upphæð ellilífeyris lækka um tiltekið hlutfall í samræmi við tryggingafræðilegt mat fyrir hvern mánuð eða brot úr mánuði sem vantar á 67 ára aldur er taka hans hefst.
    Heimilt er sjóðfélaga að fresta töku ellilífeyris allt til 70 ára aldurs og hækkar þá upphæð ellilífeyris frá því sem segir í 1. mgr. í samræmi við tryggingafræðilegt mat fyrir hvern mánuð sem töku lífeyris er frestað.

11. gr.

    Sjóðfélagi á rétt á örorkulífeyri ef hann verður fyrir orkutapi sem metið er 50% eða meira í samræmi við áunninn rétt fram að orkutapi, enda hafi hann greitt til sjóðsins í a.m.k. tvö ár og orðið fyrir tekjuskerðingu af völdum orkutapsins.
    Örorkulífeyrir skal framreiknaður samkvæmt reglum sem nánar er kveðið á um í sam­þykktum sjóðsins, enda hafi sjóðfélagi:
     a.      greitt iðgjöld til sjóðsins a.m.k. í þrjú ár á undanfarandi fjórum árum,
     b.      greitt iðgjöld til sjóðsins a.m.k. í sex mánuði á undanfarandi tólf mánuðum,
     c.      ekki orðið fyrir orkutapi sem rekja má til ofnotkunar áfengis, lyfja eða fíkniefna.
    Hafi sjóðfélagi öðlast rétt til framreiknings sem fallið hefur niður vegna tímabundinnar fjarveru af vinnumarkaði vegna vinnu erlendis, náms, leyfis frá störfum, barneigna eða sam­bærilegra ástæðna skal framreikningsréttur stofnast á nýjan leik eigi síðar en sex mánuðum frá því að hann hefur aftur störf og greiðslu iðgjalds til lífeyrissjóðs.
    Hundraðshluta orkutapsins og tímasetningu þess skal ákvarða að fengnum upplýsingum um heilsufarssögu og starfsorku umsækjanda aftur í tímann, svo og að fengnu áliti trúnaðar­læknis sjóðsins. Fyrstu fimm árin eftir orkutapið skal mat orkutaps aðallega miðað við van­hæfni sjóðfélaga til að gegna því starfi er hann hefur gegnt og aðild hans að sjóðnum er tengd. Að því tímabili loknu skal hundraðshluti orkutaps ákvarðaður að nýju með tilliti til vanhæfni sjóðfélagans til að gegna almennum störfum.
    Heimilt er, að fengnu áliti trúnaðarlæknis, að setja það skilyrði fyrir greiðslu örorku­lífeyris að sjóðfélagi fari í endurhæfingu sem bætt geti heilsufar hans.
    Örorkulífeyrir greiðist einungis ef orkutap og tekjumissir vara í þrjá mánuði eða lengri tíma.
    Í samþykktir sjóðsins skulu sett frekari ákvæði um örokulífeyrinn, svo sem örorkumat, fjárhæð hans, útreikning og skilyrði fyrir greiðslu.

12. gr.

    Nú andast sjóðfélagi sem naut elli- eða örorkulífeyris úr sjóðnum eða greitt hafði iðgjald til hans a.m.k. í 24 mánuði á undanförnum 36 mánuðum og lætur eftir sig maka og á þá maki hans rétt á lífeyri úr sjóðnum.
    Fullur makalífeyrir skal aldrei greiddur skemur en í 24 mánuði en hafi makinn barn yngra en 19 ára á framfæri sínu, sem sjóðfélaginn hafði áður á framfæri sínu, eða ef makinn er a.m.k. 50% öryrki og yngri en 67 ára, skal makalífeyrir greiddur á meðan það ástand varir.
    Maki samkvæmt þessari grein telst sá eða sú sem við andlátið var í hjúskap með sjóð­félaga, staðfestri samvist eða óvígðri sambúð, enda hafi fjárfélagi ekki verið slitið fyrir and­lát sjóðfélagans. Með óvígðri sambúð er átt við sambúð karls og konu sem eiga sameiginlegt lögheimili, eru samvistum, eiga barn saman eða konan er þunguð eða sambúðin hefur varað samfleytt í a.m.k. tvö ár. Heimilt er að greiða makalífeyri til aðila sem hefur sannanlega ann­ast heimili sjóðfélaga um árabil fyrir andlát hans. Réttur til makalífeyris fellur niður ef makinn gengur í hjónaband á ný, stofnar til sambúðar sem jafna má til hjúskapar eða stofnar til staðfestrar samvistar, enda sé ekki kveðið á um annað í samþykktum sjóðsins.
    Fullur makalífeyrir skal að lágmarki vera 50% af áunnum örorkulífeyri viðkomandi sjóð­félaga við andlátið miðað við 100% örorku.
    Í samþykktum sjóðsins skulu sett frekari ákvæði um makalífeyri, svo sem um fjárhæð hans, útreikning og skilyrði fyrir greiðslu hans.

13. gr.

    Nú andast sjóðfélagi sem greitt hefur iðgjöld til sjóðsins í a.m.k. 24 mánuði á undanfar­andi 36 mánuðum eða notið elli- eða örorkulífeyris við andlátið, og eiga þá börn hans eða kjörbörn, sem hann lætur eftir sig og yngri eru en 19 ára, rétt á lífeyri úr sjóðnum til 19 ára aldurs. Sama rétt til lífeyris öðlast börn fædd eða ættleidd fyrir orkutap sjóðfélaga sem nýtur fulls örorkulífeyris. Ef örorka er metin lægri en 100% skal barnalífeyrir vera hlutfallslega lægri.
    Fullur barnalífeyrir skal vera að lágmarki 5.500 kr. á mánuði með hverju barni örorkulíf­eyrisþega. Við andlát sjóðfélaga skal barnalífeyrir vera að lágmarki 7.500 kr. með hverju barni. Upphæðir þessar skulu breytast árlega í hlutfalli við breytingu á vísitölu neysluverðs miðað við grunnvísitölu 173,5 stig.
    Í samþykktum sjóðsins skulu sett frekari ákvæði um barnalífeyri, svo sem um útreikning og skilyrði fyrir greiðslu hans.
    Fósturbörn og stjúpbörn, sem sjóðfélagi hefur framfært að mestu eða öllu leyti, skulu eiga rétt á barnalífeyri. Skulu lífeyrisgreiðslur sjóðsins vegna slíkra barna vera hinar sömu og vera mundu ef um börn eða kjörbörn væri að ræða.
    Barnalífeyrir greiðist framfæranda barnsins.

III. KAFLI
Ýmis ákvæði.
14. gr.

    Leiði tryggingafræðileg athugun í ljós að meira en 10% munur er á milli eignarliða og líf­eyrisskuldbindinga er stjórn lífeyrissjóðsins skylt að gera nauðsynlegar breytingar á sam­þykktum hans. Sama gildir ef munur samkvæmt tryggingafræðilegum athugunum á milli eignarliða og lífeyrisskuldbindinga hefur haldist meiri en 5% samfellt í fimm ár.

15. gr.

    Nánari ákvæði um skipulag sjóðsins og starfsemi hans skulu sett í samþykktir sem stjórn sjóðsins semur og staðfestar eru af fjármálaráðherra að fenginni umsögn Fjármálaeftirlitsins.
    Sjóðurinn skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu um breytingar á stjórn, framkvæmdastjóra, endurskoðanda og tryggingafræðingi.

16. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1999. Frá sama tíma falla úr gildi lög nr. 95/1980, um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda.