Ferill 339. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 430  —  339. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um vaxtabætur af húsnæðisláni.

Frá Svavari Gestssyni.



    Hvernig má gera ráð fyrir að vaxtabætur 1 millj. kr. húsbréfaláns þróist miðað við meðal­tekjur og meðalfjölskyldustærð allt greiðslutímabil 25 ára húsbréfaláns? Í svarinu óskast hvert ár tilgreint fyrir sig miðað við breytingar á höfuðstól og afborgunum og að gert verði ráð fyrir 1,5% verðbólgu á ári allan lánstímann.


Skriflegt svar óskast.