Ferill 191. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 431  —  191. mál.




Viðbótarsvar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Svavars Gestssonar um SR-mjöl.

    Í svari fjármálaráðherra í þskj. 316 við fyrirspurn Svavars Gestssonar um SR-mjöl gætir ónákvæmni. Til frekari skýringa er því lagt fram eftirfarandi viðbótarsvar.
    Með lögum nr. 20/1993 sem samþykkt voru á Alþingi 5. apríl 1993 var ákveðið að stofna hlutafélag sem tæki við rekstri Síldarverksmiðja ríkisins. Hlutafélagið SR-mjöl var síðan stofnað 6. júlí 1993 á grundvelli þessara laga og tók við öllum rekstri, eignum og skuldum Síldarverksmiðja ríkisins 1. ágúst 1993. Í greinargerð með lagafrumvarpinu segir meðal ann­ars að árin á undan hafi Síldarverksmiðjur ríkisins verið reknar með tapi og nemi uppsafnað tap hundruðum milljóna króna. Skuldir fyrirtækisins námu í árslok 1991 um 1.450 m.kr. Tek­ið skal fram að uppsafnað tap Síldarverksmiðja ríkisins var ekki fært yfir á SR-mjöl hf. þann­ig að hlutafélagið hefur ekki notið skattafrádráttar vegna þess.
    Þá kemur fram í greinargerðinni að löggiltur endurskoðandi fyrirtækisins hafi í bréfi, dags. 8. október 1991, varað við slæmri fjárhagsstöðu Síldarverksmiðjanna og telji að eins og fjár­hag fyrirtækisins hafi verið komið yrði erfitt að breyta því í hlutafélag án verulegra fjárfram­laga eiganda þess. Ríkisendurskoðun tók undir þessar viðvaranir. Með hliðsjón af framan­sögðu var leitað til Alþingis um heimild til handa fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs til að yfirtaka skuldir Síldarverksmiðja ríkisins að fjárhæð allt að 500 m.kr., sbr. 9. gr. laga nr. 20/1993.
    Áður en SR-mjöl hf. tók yfir rekstur Síldarverksmiðjanna ákvað ríkisjóður að nýta fyrr­greinda heimild með yfirtöku á 389,6 m.kr. af skuldum verksmiðjanna. Þar af var felld niður skuld við ríkissjóð að upphæð 21,5 m.kr. Yfirtaka skulda var því vegna langvarandi taprekst­urs Síldarverksmiðja ríkisins.
    Hið sama á við um lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs og kostnað vegna dómsniðurstöðu um biðlaunaréttindi. Kostnaðurinn var vegna þeirra starfsmanna ríkisins sem störfuðu hjá Síldar­verksmiðjunum.
    Ríkissjóður hefur því ekki greitt nein bein framlög til hlutafélagsins SR-mjöl, hvorki á meðan félagið var í eigu ríkisins né eftir að það var selt 1. febrúar 1994. Því getur ekki verið um neinar endurgreiðslur að ræða frá félaginu.
    Fjármálaráðuneytið hefur ekki upplýsingar um í hve miklum mæli kaupendur hlutabréf­anna í SR-mjöli hf. hafa selt þau aftur og getur ekki upplýst um skattgreiðslur af söluhagnaði vegna þess. Er vísað til almennra reglna sem um þau efni gilda og raktar voru í hinu upphaf­lega svari við fyrirspurninni.