Ferill 215. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 435 — 215. mál.
Svar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Guðmundar Árna Stefánssonar um kostnað af breytingu ríkisfyrirtækja í hlutafélög.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver hefur heildarkostnaður verið af breytingu ríkisfyrirtækja í hlutafélög og sölu á hlutafé í eigu ríkisins á yfirstandandi kjörtímabili? — Óskað er sundurliðunar eftir verkefnum og einnig hverjir hafa þegið greiðslur hverju sinni fyrir þessi verkefni, þar á meðal söluþóknun verðbréfafyrirtækja sem annast hafa sölu bréfanna.
Það sem af er kjörtímabili núverandi ríkisstjórnar hafa verið seld hlutabréf í eigu ríkisins fyrir 6.081,4 m.kr. Þá hefur verið til skoðunar sala nokkurra fyrirtækja sem ekki hefur orðið af auk þess sem ýmis rekstur ríkisins hefur verið boðinn út. Er þetta í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um að flytja frá ríkinu rekstur sem betur er kominn í höndum einkaaðila. Þessu til viðbótar hefur á kjörtímabilinu verið unnið að formbreytingu banka og fjárfestingarlánasjóða auk formbreytingar og síðan skiptingu Póst- og símamálastofnunar í tvö hlutafélög.
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum 9. febrúar 1996 verklagsreglur um útboð og sölu ríkisfyrirtækja. Samkvæmt þeim er yfirstjórn einkavæðingar í höndum ríkisstjórnar og fjögurra manna ráðherranefndar. Á vegum ráðherranefndarinnar starfar framkvæmdanefnd sem annast undirbúning og samræmingu verkefna á sviði einkavæðingar. Í verklagsreglunum er jafnframt fjallað um fjölmarga þætti einkavæðingar og þær kröfur sem gerðar eru um vinnubrögð á þessu sviði. Áður en fyrirtæki er selt skal fara fram ítarleg úttekt á rekstri þess og rekstrarumhverfi. Markaðsvirði þess skal metið og þá sérstaklega í ljósi áætlaðs framtíðartekjuflæðis. Kveðið er á um söluaðferðir og sérstaklega lögð á það áhersla að almenningi gefist kostur á að kaupa hlutabréf. Fela skal löggiltum verðbréfafyrirtækjum að annast úttektir og umsjón með sölu. Auk þess þarf að leita til fjölmargra annarra sérfræðinga til að tryggja hverju sinni sem besta meðferð hvers máls.
Kostnaður við verkefni sem hafa verið á vegum framkvæmdanefndar um einkavæðingu nemur alls 86,2 m.kr. á kjörtímabilinu eða 1,42% af heildarsöluverði hlutabréfa sem ríkið hefur selt. Leitað hefur verið eftir upplýsingum frá þeim fyrirtækjum sem formbreytt hefur verið á kjörtímabilinu. Svar hefur borist um kostnað vegna formbreytingar Póst- og símamálastofnunar og er það birt sem fylgiskjal. Hins vegar hafa ekki enn borist svör frá ríkisbönkunum og fjárfestingarlánasjóðunum, en þau verða send Alþingi þegar þau hafa borist.
Á kjörtímabilinu hefur fallið til kostnaður vegna sölu hlutabréfa ríkisins í eftirfarandi fyrirtækjum: Jarðborunum hf., Bifreiðaskoðun Íslands hf., Skýrr hf., Stofnfiski hf. og Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf.
Prentað upp.
Að auki hefur fallið til kostnaður vegna undirbúnings sölu á ýmsum öðrum fyrirtækjum og má þar nefna Áburðarverksmiðjuna hf., Sementsverksmiðjuna hf. og Hólalax hf. Þá hefur verið lögð vinna í að skoða einkavæðingu á starfsemi ýmissa annarra stofnana, m.a. Námsgagnastofnunar og mötuneyta á vegum ríkisins.
Í yfirlitinu hér á eftir er gerð grein fyrir bókfærðum kostnaði vegna einkavæðingarverkefna ríkisstjórnarinnar á kjörtímabilinu. Kostnaði er skipt á verkefni eftir því sem hægt er og þeirra ráðgjafa sem unnu að hverju máli jafnframt getið innan sviga.
Athygli er vakin á því að hluti kostnaðar sem fellur til 1996 er vegna einkavæðingarverkefna frá fyrra kjörtímabili og er hann ekki talinn með.
Verkefni árið 1996.
Á árinu 1996 var lokið við sölu hlutabréfa ríkisins í Jarðborunum hf. Þá var unnið að undirbúningi sölu Áburðarverksmiðjunnar hf. og Sementsverksmiðjunnar hf. með viðamiklum úttektum á starfsemi fyrirtækjanna og samkeppnisumhverfi. Á árinu hófst undirbúningur að útboði mötuneyta ríkisins en ákveðið var að bjóða út rekstur nokkurra mötuneyta á vegum stofnana fjármálaráðuneytisins. Fram fór viðamikil undirbúningsvinna við skilgreiningu á slíkum rekstri sem mun gagnast við útboð annarra mötuneyta ríkisins. Þá var ákveðið að kynna einkavæðingu og vinnulag á því sviði með sérstöku kynningarátaki þar sem m.a. var vakin athygli á verklagsreglunum með auglýsingum í dagblöðum.
| 1996 | Kr. |
|
Áburðarverksmiðjan hf. (Handsal hf.)
|
650.000 |
|
Sementsverksmiðjan hf. (Skandia hf.)
|
750.000 |
|
Jarðboranir hf. (Kaupþing hf.)
|
3.794.964 |
|
Útboð mötuneyta (Ríkiskaup, Íslandskostur hf.)
|
349.845 |
|
Kynningarmál (Gott fólk, birtingarkostnaður)
|
2.777.425 |
|
Ýmislegt, óskipt
|
883.234 |
|
Heildarkostnaður
|
9.205.468 |
Verkefni árið 1997.
Á árinu 1997 var ákveðið að skipta rekstri Bifreiðaskoðunar Íslands hf. í tvö fyrirtæki, annars vegar fyrirtæki sem annaðist skoðanir bifreiða í samkeppni við aðrar skoðunarstofur og hins vegar skráningarfyrirtæki er annaðist þá þætti starfseminnar sem er í einkasöluaðstöðu. Þá fór fram sala á hlutabréfum ríkisins og Reykjavíkurborgar í Skýrr hf. að því marki að nýr meirihlutaeigandi tók við stjórn fyrirtækisins auk þess sem starfsmenn keyptu hlutabréf. Fyrri eigendur áttu áfram 44%. Áburðarverksmiðjan var auglýst til sölu bæði hér á landi og erlendis en óviðunandi tilboð bárust. Lokið var við útboð nokkurra mötuneyta sem hófst árið á undan og sparaði það verulega fjármuni. Þá var efnt til ráðstefnu um einkavæðingu þar sem bæði innlendir og erlendir fyrirlesarar komu fram.
| 1997 | Kr. |
| Bifreiðaskoðun Íslands hf. (Stoð-endurskoðun hf., Landsbréf hf., Fjárvangur hf.) | 2.239.279 |
|
Útboð mötuneyta (Ríkiskaup, KPMG Endurskoðun hf., Íslandskostur hf.)
|
1.426.005 |
|
Námsgagnastofnun (VSÓ-rekstrarráðgjöf)
|
899.381 |
|
Áburðarverksmiðjan (Dow Jones (erlend auglýsing), Búnaðarbanki Íslands)
|
322.271 |
|
Skýrr hf. (Dow Jones (erlend auglýsing), Kaupþing hf.)
|
1.812.951 |
|
Kynningarmál
|
1.438.957 |
|
Ýmislegt, óskipt
|
3.477.847 |
|
Heildarkostnaður
|
11.616.691 |
Verkefni árið 1998.
Sala á hlutabréfum í Íslenska járnblendifélaginu hf. og Fjárfestingarbanka atvinnulífsins eru fyrirferðarmestu verkefni ársins 1998. Því til viðbótar hefur verið unnið að undirbúningi einkavæðingar Hólalax hf. og Stofnfisks hf. Þá var lokið sölu hlutabréfa ríkisins og Reykjavíkurborgar í Skýrr hf.
| 1998 | Kr. |
|
Hólalax (Stoð-endurskoðun hf.)
|
237.012 |
| Íslenska járnblendifélagið hf. (Landsbanki Íslands hf., Gunnar Viðar hdl., Jón
Skaptason, löggiltur skjalaþýðandi)
|
8.311.181 |
|
Útboð mötuneyta (Íslandskostur hf.)
|
146.225 |
|
Áburðarverksmiðjan hf. (Handsal hf.)
|
42.523 |
|
Skýrr hf. (Kaupþing hf.,* Verðbréfastofan hf.)
|
2.500.000 |
|
Stofnfiskur hf. (Íslandsbanki, fyrirtækjaþjónusta)
|
350.000 |
|
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf. (Arthur Andersen og FBA hf.)
|
49.500.000 |
|
Ýmislegt
|
4.295.423 |
|
Heildarkostnaður
|
65.382.364 |
Söluverð hlutabréfa.
Heildarsöluverð hlutabréfa í eigu ríkisins á kjörtímabilinu er sem hér segir:
| Fyrirtæki | Ár | Söluverð, m.kr. |
|
Jarðboranir hf.
|
1996 | 68,0 |
|
Skýrr hf.
|
1997 | 80,8 |
|
Bifreiðaskoðun hf.
|
1997 | 90,0 |
|
Íslenska járnblendifélagið hf.
|
1998 | 1.033,0 |
|
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf.
|
1998 | 4.664,0 |
|
Skýrr hf.
|
1998 | 145,6 |
|
Samtals:
|
6.081,4 |
Heildarkostnaður framkvæmdanefndar um einkavæðingu vegna sölu, þjónustu, útboða og kynningarmála hefur því verið 86.204.523 kr. á kjörtímabilinu eða 1,42 % af heildarsöluverði hlutabréfa á tímabilinu.
Fylgiskjal.
Kostnaður við breytingu Póst- og símamálastofnunar í hlutafélag.
Í bókhaldi árin 1996–97 var kostnaður við stofnun hlutafélags annars vegar færður á sérstakt viðfangsefni vegna réttarstöðubreytingar og hins vegar á viðfangsefni forstjóra og stjórnar.
Kostnaður við þessa breytingu var fólginn í þóknun til sérfræðinga vegna endurmats á eignum stofnunarinnar, vinnu við gerð stofnsamþykkta og annarra lagalegra álitaefna, þóknun til undirbúningsnefndar, kostnaði við skáningu félagsins, auglýsingar ásamt öðrum kostnaði.
Samkvæmt bókhaldi var útlagður kostnaður án virðisaukaskatts er 13.036.371 kr. og unnu eftirtaldir ráðgjafar að verkefninu: Stoð-endurskoðun hf., Lögmenn Höfðabakka, Sveinn Snorrason hrl., Lögfræðiskrifstofan Garðastræti 17, Talnakönnun hf. og undirbúningsnefnd.
Við breytingu Póst- og símamálastofnunar í hlutafélag var samið um uppgjör á áföllnum lífeyrisskuldbindingum stofnunarinnar. Samkvæmt ríkisreikningi fyrir árið 1996 nam kostnaður vegna yfirtekinna lífeyrisskuldbindinga ríkissjóðs samtals 1.717 m.kr. Kostnaður félagsins vegna stimpilgjalda af skuldabréfum við uppgjör lífeyrisskuldbindinga nam 90 m.kr.