Ferill 333. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 529 — 333. mál.
Breytingartillaga
við frv. til l. um húsnæðissamvinnufélög.
Frá félagsmálanefnd.
2. mgr. 1. gr. orðist svo:
Markmið félaga skv. 1. mgr. skal jafnframt vera að eiga aðild að félögum með takmarkaðri ábyrgð, svo sem samvinnusamböndum samkvæmt lögunum um samvinnufélög, og hlutafélögum, þar með töldum einkahlutafélögum, enda standi slík félög að verkefnum sem teljast mikilvæg fyrir starfsemi húsnæðissamvinnufélaga.