Ferill 347. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 530  —  347. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um fjöleignarhús, nr. 26/1994, með síðari breytingum.

Frá félagsmálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Þórhall Vilhjálmsson og Inga Val Jóhannsson frá félagsmálaráðuneyti.
    Í frumvarpinu er lagt til að sá frestur á gildistöku sem fram kemur í ákvæði til bráðabirgða í lögum um fjöleignarhús verði framlengdur frá 1. janúar 1999 til 1. janúar 2001. Samkvæmt því frestast gildistaka fyrirmæla 16. gr. laganna sem kveða á um að þinglýst eignaskiptayfir­lýsing skuli vera skilyrði fyrir þinglýsingu á eignayfirfærslum í fjöleignarhúsum. Var frestur­inn ætlaður eigendum og húsfélögum til undirbúnings og gerðar eignaskiptayfirlýsinga og hlutaðeigandi stjórnvöldum til fræðslu, kynningar og annarra undirbúningsráðstafana. Ljóst er að þörf er á lengri fresti þar sem enn eru nokkrir annmarkar á því að ákvæði 16. gr. lag­anna geti tekið gildi.
    Nefndin leggur áherslu á að nauðsynlegt er að nýta þann frest er hér um ræðir vel þannig að tryggt verði að lögin taki gildi 1. janúar 2001.
Nefndin mælir með að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 16. des. 1998.



Kristín Ástgeirsdóttir,


form., frsm.


Einar K. Guðfinnson.


Rannveig Guðmundsdóttir.



Siv Friðleifsdóttir.


Kristján Pálsson.


Pétur H. Blöndal.



Magnús Stefánsson.


Guðný Guðbjörnsdóttir.


Arnbjörg Sveinsdóttir.