Ferill 366. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 544 — 366. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um bætta réttarstöðu íbúa á hjúkrunar- og dvalarheimilum, sólarhringsstofnunum og vistheimilum fyrir aldraða og fatlaða.
Flm.: Rannveig Guðmundsdóttir, Ágúst Einarsson, Ásta R. Jóhannesdóttir,
Gísli S. Einarsson, Guðmundur Árni Stefánsson, Jóhanna Sigurðardóttir,
Lúðvík Bergvinsson, Sighvatur Björgvinsson, Svanfríður Jónasdóttir,
Össur Skarphéðinsson, Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa breytingar á lögum um almannatryggingar þannig að þeir sem dveljast langdvölum eða eiga heimili sitt á hjúkrunar- eða dvalarheimilum, vistheimilum eða sólarhringsstofnunum sökum öldrunar eða fötlunar njóti sömu réttinda hvað varðar lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins, hjálpartæki og aðra fyrirgreiðslu og þeir sem búa utan umræddra stofnana. Unnið verði að málinu í samvinnu við hagsmunasamtök aldraðra og fatlaðra.
Niðurstöður og nauðsynlegar lagabreytingar verði lagðar fyrir Alþingi fyrir árslok 1999.
Greinargerð.
Tilgangur þessarar tillögu er að bæta úr því misrétti sem þeir sem dveljast á stofnunum verða fyrir. Hugsunin á bak við tillöguna er sú að íbúar umræddra stofnana og heimila fái greiddan elli- eða örorkulífeyri, tekjutryggingu og heimilisuppbót. Þeir greiði síðan til heimilisins vegna eðlilegs framfærslukostnaðar, svo sem fyrir fæði, húsaleigu o.fl., á sama hátt og aðrir.
Þegar aldraðir eða fatlaðir vistast á sólarhringsstofnunum, hjúkrunar- og vistheimilum, missa þeir réttinn til beinna bótagreiðslna úr almannatryggingakerfinu en fá eingöngu greiddan mánaðarlega vasapeninga sem nú eru rétt um 12.000 kr. Þetta fyrirkomulag sviptir fólk sjálfstæði og sjálfsvirðingu og réttinum til að ráða fjármálum sínum sjálft. Í því felst ákveðin forræðishyggja sem samræmist illa jafnræðisreglu og mannréttindasjónarmiðum, sviptir fólk fjárræði og er lítilsvirðandi.
Markmiðið með tillögunni er m.a. það að settar verði skýrar reglur um hvaða þættir í þjónustu stofnana skuli greiðast af stofnuninni sjálfri og hvaða kostnað þeir einstaklingar sem búa á stofnunni eigi að bera.
Fólk sem býr á þessum stofnunum eða heimilum hefur samkvæmt reglugerð rétt til ýmiss konar heilbrigðisþjónustu, svo sem lyfja, hjálpartækja o.fl. sem stofnun greiðir að fullu. Virði stofnun ekki þennan rétt að mati sjúklings eða aðstandenda þeirra er nauðsynlegt að til sé úrræði, svo sem kæru- eða kvörtunarleið, til að fá skorið úr um réttindi sjúklingsins. Það er brýnt réttindamál að íbúar umræddra stofnana sitji við sama borð hvað þetta varðar og þeir sem hafa átt kost á annarri búsetu, svo sem sambýlum, vernduðu húsnæði eða eigin heimili.
Kostir breytinganna sem lagðar eru til eru margvíslegir. Það er augljóst réttlætismál að allir aldraðir og fatlaðir, líka þeir sem dveljast á stofnunum og þurfa verulega aðstoð, njóti sambærilegra réttinda og kjara og þeir sem geta búið sjálfstætt. Með breytingunum væri komið í veg fyrir að fólki væri mismunað eftir búsetu eða tegund stofnunar sem það býr á.
Endurskoða þarf reglur um framfærslu. Setja þarf reglur sem tryggja þessum hópi lágmarksframfærslu en greiðsla 12.000 kr. vasapeninga er niðurlægjandi fyrir fólk sem býr á þessum stofnunum. Einnig er rétt að hafa í huga að vasapeningar eru tekjutengdir og skerðingarmörk mjög lág eða rúmlega 3.000 kr. Séu aðrar tekjur en greiðslur Tryggingastofnunar ríkisins hærri en rúmlega 3.000 kr. skerðast vasapeningar um 65% þeirra tekna. Ef íbúar hjúkrunarstofnana eða vistheimila fengju bætur greiddar beint, eins og hér er lagt til, yrði greiðslukerfið sýnilegra og gagnsærra. Því væri betur hægt að koma í veg fyrir misræmi og mismunum sem virðist víða vera í þjónustukerfi elli- og örorkulífeyrisþega.
Það væri einnig í samræmi við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar að tryggja öllum sambærileg réttindi, óháð búsetu eða stöðu, en draga má í efa að núverandi fyrirkomulag uppfylli þá reglu.
Breytingar þær sem hér eru lagðar til hafa reynst vel í Danmörku. Fyrirkomulagið var sett á til reynslu í tvö ár en frá árinu 1994 hefur það verið lögfest. Flutningsmenn tillögunar leggja til að við endurskoðun þessara mála verði danska leiðin skoðuð vel.
Ef þær breytingar sem hér eru lagðar til ná fram að ganga þarf að setja skýrar reglur um hvernig hægt verði að styðja þá sem þurfa sérstaka aðstoð í fjármálum. Skoða þarf hvort nýleg endurskoðun á lögræðislögum tryggi að slíkt fyrirkomulag geti komist á.
Gagnger endurskoðun þarf að fara fram á tilhögun og útreikningum fastra fjárveitinga til þeirra hjúkrunar- og vistheimila og sólarhringsstofnana sem málið varðar og skila þarf fé inn í almannatryggingakerfið í því skyni að standa straum af lífeyrisgreiðslum til þeirra sem hér um ræðir, sem og öðrum kostnaði sem þessar breytingar hafa í för með sér fyrir Tryggingastofnun ríkisins.
Þingsályktunartillaga þessi hefur verið flutt áður og var fyrsti flutningsmaður hennar þá Ásta B. Þorsteinsdóttir. Tillagan hefur verið send fjölmörgum félögum og félagasamtökum til umsagnar. Margar umsagnir bárust þar sem lýst var yfir stuðningi við hana. Við endurflutning málsins hefur verið tekið tillit til þeirra athugasemda og ábendinga sem gerðar voru.