Ferill 297. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Nr. 2/123

Þskj. 621  —  297. mál.



Þingsályktun

um fullgildingu samnings milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um Norræna fjárfestingarbankann.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samning milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um Norræna fjárfestingarbankann sem gerður var í Ósló 23. október 1998.

Samþykkt á Alþingi 19. desember 1998.