Ferill 269. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 646  —  269. mál.




Svar



samgönguráðherra við fyrirspurn Hjálmars Árnasonar um vegtengingu frá Stafnesi til Hafna, Ósabotnaveg.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hver er áætlaður kostnaður við vegtengingu frá Stafnesi til Hafna um svonefndan Ósabotnaveg?

    Umrædd vegtenging liggur yfir varnarsvæði og er ekki þjóðvegur samkvæmt vegáætlun. Ekki liggur fyrir hvort leyfi fengist fyrir því að leggja veg yfir varnarsvæðið á þessum slóð­um. Á varnarsvæðinu er malbikaður kafli sem nota mætti sem hluta af vegtengingunni ef um það semdist. Er kostnaðurinn miðaður við að svo yrði gert.
    Lengd nýs vegar frá Garðskagavegi við Stafnes að malbikuðum vegi við Gálga á varnar­svæðinu er um 2 km. Varnarsvæðisvegurinn yrði ekinn um 4 km, en þaðan þyrfti að leggja nýjan veg um 2 km á Hafnaveg. Mismunandi leiðir koma til álita en Ósar eru á náttúruminja­skrá og því er ekki gert ráð fyrir að nýr vegur verði mjög nálægt sjó.
    Reiknað er með 6,5 m breiðum vegi með bundnu slitlagi (klæðningu). Kostnaður er áætl­aður um 15 millj. kr. á kílómetra eða samtals um 60 millj. kr. fyrir báða kaflana (4 km að lengd). Hér er eingöngu talinn kostnaður við vegagerðina sjálfa en ekki tekið tillit til sérstaks kostnaðar sem leiða kynni af því að fara í gegnum varnarsvæðið.